Meintur nauðgari sagður hafa flúið til Íslands Samúel Karl Ólason skrifar 4. janúar 2019 09:54 Jay Paul Robinson.
Yfirvöld í Bandaríkjunum telja að Jay Paul Robinson, sem hefur verið ákærður fyrir nauðganir og að taka myndir af fólki á almenningssalerni, svo eitthvað sé nefnt, hafi flúið til Íslands til að forðast dóm. Robinson, sem er 42 ára gamall, var handtekinn í ágúst vegna gruns um að hann hefði falið myndavél á salerni í bókasafni í Columbia. Ekki er vitað hvar hann er nú staddur en rannsakendur komust að því að hann hefði bókað flug til Keflavíkur þann 5. ágúst. Starfsmenn bókasafnsins fundu áðurnefnda myndavél og var lögregla kölluð til. Upptökur úr öryggismyndavélum gáfu í skyn að Robinson væri sökudólgurinn og var hann handtekinn þegar hann kom og reyndi að sækja myndavélina. Á henni fundust myndir af mönnum, konum og börnum. Eftir að Robinson var handtekinn fannst, samkvæmt Columbia Tribune, myndefni á tölvu hans sem sýndi nauðganir og ýmis kynferðisbrot. Í dómsskjölum segir að efnið sýni Robinson ítrekað byrla konu ólyfjan og nauðga henni.Í tölvupóstum sem hann sendi á fyrrverandi eiginkonu sína sagðist hann nokkuð viss um að hann ætlaði sér að fara á brott til lengri tíma. Hún sagði rannsakendum að hann væri að starfa erlendis sem verkamaður. „Ég óttast að þú skiljir ekki hve slæmt þetta á eftir að verða. Ég er að fara að hitta lögfræðing á mánudaginn. Ég er nokkuð viss um að ég sé að fara í burtu til lengri tíma,“ skrifaði Robinson til fyrrverandi eiginkonu sinnar. Hann sagði einnig að ekki væri nokkur leið fyrir hann að taka til baka það sem hann hefði gert en hann muni ekki geta valdið meiri skaða.
Bandaríkin Mest lesið Engin vettlingatök hjá Röggu þegar Mummi sökk í jökulvatn Innlent Hormússund sagt lokað á ný Erlent Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Erlent Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Erlent Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Erlent Hvenær verður hlaðvarp að fjölmiðli? Innlent Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Innlent Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Erlent Karlabyltingin hefst í Mosfellsbæ Innlent Braut rúðu eftir að hafa verið synjað um starf Innlent Fleiri fréttir Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja „Ketamín-drottningin“ í fimmtán ára fangelsi Samstaða um að Beinir verði lögmaður Færeyja Hormússund sagt lokað á ný Rex Heuermann játar að hafa myrt átta konur Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Réðust fyrirvaralaust á miðborg Beirút Bauð Pútín að vera „músin“ hans Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Bein útsending: Artemis II á leiðinni heim Vance sakar ESB um kosningaafskipti á kosningafundi með Orbán Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Artemis II er á heimleið JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Orbán sakaður um sprengjutilræði Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Kanna skothvelli við Hvíta húsið Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Sautján ára drengur lést í snjóflóði Sjá meira