Viðvaranir víða um land: Stormur og jafnvel ofsaveður í kortunum Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 4. febrúar 2019 16:06 Það mun blása á morgun. vísir/vilhelm
Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir og eina appelsínugula viðvörun fyrir morgundaginn þar sem von er á hvassviðri, stormi, roki og jafnvel staðbundnu ofsaveðri í Austur-Landeyjum og undir Eyjafjöllum með hviðum upp í allt að 45 metra á sekúndu síðdegis á morgun. Á vef Veðurstofunnar tekur gul viðvörun gildi fyrir Suðurland klukkan þrjú í nótt. Hún gildir til klukkan 15 síðdegis á morgun en búast má við hvassviðri eða stormi á svæðinu og staðbundnu roki í Austur-Landeyjum. Víða gæti orðið mikill skafrenningur, ekki hvað síst fyrir hádegi og því lélegt ferðaveður. Klukkan 15 á morgun tekur svo appelsínugul viðvörun gildi á Suðurlandi. Þá verður ekkert ferðaveður á svæðinu: „Gengur í austan storm eða rok og jafnvel staðbundið ofsaveður í Austur-Landeyjum og undir Eyjafjöllum. Hviður geta náð allt að 45 m/s. Hætta á foktjóni og ekkert ferðaveður,“ segir á vef Veðurstofunnar. Appelsínugul viðvörun er í gildi til klukkan 22 annað kvöld þegar gul viðvörun tekur við sem gildir til miðnættis. Á Faxaflóa er varað við hvassviðri eða stormi frá klukkan sex í fyrramálið og er gul viðvörun í gildi þar til klukkan sex á miðvikudagsmorgun. Hið sama gildir um miðhálendið þar sem varað er við stormi eða roki og á Suðausturlandi er varað við hvassviðri eða stormi frá klukkan 15 síðdegis á morgun og þar til klukkan sex á miðvikudagsmorgun.Nánari upplýsingar má nálgast á vef Veðurstofu Íslands.
Veður Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sjá meira