Margt sem má bæta í vinnuumhverfi hótelþerna
Vinnueftirlitið hóf vinnuverndarátak á hótelum í lok árs 2017 en skýrsla með helstu niðurstöðum átaksins var birt á vef eftirlitsins í gær.Heimsótt voru 36 hótel með 10 starfsmenn eða fleiri. Markmiðið með átakinu var að kanna vinnuumhverfi starfsfólks við hótelþrif á Íslandi og meta vinnuaðstæður og álag. Gerð var spurningalistakönnun meðal starfsmanna við hótelþrif og úttekt á vinnuumhverfi þeirra auk þess sem virkni almenns vinnuverndarstarfs hjá hótelunum var könnuð.
Stærstur hluti þátttakenda í spurningalistakönnuninni voru konur (84%) af 22 þjóðernum. Flestir voru þátttakendur frá Póllandi (53%), 11% frá Litáen og 7% frá Íslandi. Á 25 vinnustöðum eða í tæplega 70% tilvika þurfti að gefa fyrirmæli varðandi áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustað, þ.m.t. áhættumat og áætlun um forvarnir, og voru það algengustu fyrirmælin.
„Í ljósi niðurstaðna átaksins er rík ástæða til þess að hvetja forsvarsmenn hótela og gististaða til þess gera eða fara yfir gildandi áætlun vinnustaðarins um öryggi og heilbrigði. Samkvæmt niðurstöðum eftirlitsátaks er margt sem má bæta í vinnuumhverfi starfsfólks við hótelþrif.“
Samskiptum við yfirmenn oft ábótavant
Samtals svöruðu spurningalistanum 196 hótelþernur, af 782 starfsmönnum sem störfuðu hjá hótelunum í heild. Niðurstöður könnunarinnar sýndu til að mynda að rúm 3% þeirra sem starfa við hótelþrif hafa orðið fyrir kynferðislegri áreitni í vinnunni.2,6% töldu vinnufélaga hafa orðið fyrir kynferðislegri áreitni á vinnustaðnum en langstærstur hluti svarenda svaraði báðum spurningum neitandi (95,5% og 92,7%).
Þegar starfsmenn voru spurðir um hvort næsti yfirmaður deildi verkefnum á hlutlægan og réttlátan hátt niður á starfsmenn voru um 18% sem svöruðu fremur sjaldan, mjög sjaldan eða aldrei.
Einn af hverjum fimm starfsmönnum eða rúm 20% töldu næsta yfirmann sinn fremur sjaldan, mjög sjaldan eða aldrei gæta réttlætis og jafnræðis í framkomu sinni við starfsmenn.
Rúm 67% starfsmanna svöruðu því til að fremur oft, mjög oft eða alltaf væru samskipti við næsta yfirmann að valda þeim streitu.
Skýrsla Vinnueftirlitsins í heild.