Sameining við Þórshöfn reynst dýrkeypt að mati Bakkfirðinga
Fyrir aldarfjórðungi bjuggu 130 manns á Bakkafirði en síðan hefur íbúum fækkað um helming. Búið er að loka skólanum, leikskólanum og einu búðinni. Þar er ekkert starf eftir í þjónustu.
Áki Guðmundsson, sem rekur fiskvinnslu á Bakkafirði, segir að þegar sveitarfélögin Skeggjastaðahreppur og Þórshöfn sameinuðust í Langanesbyggð árið 2006 hafi verið samið um að skóli og leikskóli yrðu áfram á Bakkafirði en einnig starfsmaður áhaldahúss.
„Sameinað sveitarfélag, sem lagði af stað undir kjörorðunum „Sameining til sóknar“ hefur reynst okkur gríðarlega dýrkeypt,“ segir Áki.
María Guðmundsdóttir var skólastjóri og Bylgja Dögg Sigurbjörnsdóttir kenndi við skólann, sem lokað var fyrir tveimur árum.
-Finnst ykkur það hafa verið mistök að sameinast Þórshöfn?
„Já,“ svarar Bylgja Dögg.
„Ég segi þetta svolítið.. ég tók einu sinni að mér tvö lömb. Ég væri ekkert rosalega góð í að ala þau upp ef ég hefði drepið annað þeirra. Mín skylda væri að gefa þeim báðum að éta. Og það er eiginlega þannig sem sveitarstjórn á að hugsa,“ segir María.
Skrifstofa Langanesbyggðar er á Þórshöfn.
„Það er ekki mín upplifun að Langnesingar eða Þórshafnarfólk hafi á einhvern hátt ekki viljað eða ekki sinnt Bakkafirði. Það er ekki mín upplifun,“ segir Elías Pétursson sveitarstjóri.
„Það er skrítið að ríkið skuli hvetja til sameiningar og það eru engin verkfæri til að fylgjast með því hvað gerist. Engin. Það er ekki gert ráð fyrir að þessu sé slitið,“ segir Áki.
Sveitarstjórinn segir að lokun skólans hafi verið mjög erfið en stefnt hafi í að þar yrðu aðeins fimm börn.
„Jafn erfitt og þetta er þá verða menn að horfa á þetta svolítið svona út frá því hvað er best að gera en ekki endilega hvað manni langar að gera,“ segir Elías.
Nánar er fjallað um baráttu Bakkfirðinga fyrir tilverugrundvelli byggðarinnar í þættinum „Um land allt“.
Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Tengdar fréttir
Höfn í Finnafirði ýmist sögð lyftistöng eða ógn byggðar
Sumir sjá fram á kúvendingu í atvinnumálum og mikla uppbyggingu en aðrir óttast stærðina, landssölu og að fiskimiðin skaðist.
Hann landaði 32 kílóa skrímsli á Bakkafirði
Bakkafjörður er orðinn einn vinsælasti útgerðarstaður strandveiðisjómanna. Þar landa þeir stórþorski sem þeir veiða við Langanes og fagna mun hærra fiskverði en í fyrra.
Deila um sorpurðun í Langanesbyggð
Hluti íbúa Bakkafjarðar er óánægður með að fá sorpurðun sveitarfélagsins í túngarð byggðarinnar. Deila um urðunina hefur staðið í nokkur ár en á meðan hefur sorp verið keyrt á Vopnafjörð. Sveitarstjórinn vonast eftir farsælli
Norðausturhringurinn lagður bundnu slitlagi
Átak hefst í sumar við að byggja upp þjóðveginn um Langanesbyggð, milli Þórshafnar og Bakkafjarðar. Sveitarstjórinn segir þetta mjög ánægjulegar vegarbætur.
Stærsta fyrirtæki Bakkafjarðar selt á nauðungaruppboði
Örlög Bakkafjarðar eru í höndum Byggðastofnunar eftir að stærsta fiskvinnsla byggðarlagsins, sem veitt hafði meirihluta íbúanna atvinnu, var slegin stofnuninni á nauðungaruppboði. Kristinn Pétursson, fyrrverandi alþingismaður, og eiginkona hans, sem byggðu upp fyrirtækið, sitja eftir eignalaus.
Mónakó Supermarket opin tvo tíma á dag
Eina búðin á Bakkafirði er bara opin tvo tíma á dag og er um leið helsti samkomustaður þorpsins.