Loksins sigur hjá Lakers Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 13. mars 2019 07:30 LeBron James var kátur í nótt. Vísir/Getty
LA Lakers komst aftur á sigurbraut í NBA-deildinni vestanhafs eftir fimm tapleiki í röð. Í nótt hafði liðið betur gegn Chicago Bulls á útivelli, 123-107. Lakers byrjaði reyndar ekki vel í leiknum og skoraði aðeins sextán stig í fyrsta leikhluta. Chicago var með átján stiga forystu að honum loknum en þá fóru gestirnir í gang og tóku leikinn yfir í þriðja leikhluta. LeBron James skoraði 36 stig fyrir Lakers og var með tíu fráköst þar að auki. Kentavious Caldwell-Pope átti einnig góða innkomu af bekknum og skoraði 24 stig.@KingJames tallies 36 PTS, 10 REB & 4 AST in the @Lakers road win! #LakeShowpic.twitter.com/wvOIlPbMc3 — NBA (@NBA) March 13, 2019 San Antonio vann Dallas, 112-105. DeMar DeRozan skoraði 33 stig og LaMarcus Aldridge 28 fyrir San Antonio sem hefur unnið nú unnið sex leiki í röð. Þetta var hins vegar sjötti tapleikur Dallas í röð en Luka Doncic náði sér ekki á strik í nótt. hann skoraði tólf stig en nýtti aðeins fimm af átján skotum sínum í leiknum og eitt af níu af vítalínunni. Doncic hefur verið að glíma við meiðsli í hné síðustu vikur. Þá hafði Philadelphia betur gegn Cleveland, 106-99, þar sem Joel Embiid náði sinni 50. tvöföldu tvennu á tímabilinu. Hún var með sautján stig og nítján fráköst, en Embiid varði fjögur skot þar að auki. Úrslit næturinnar: Indiana - New York 103-98 Philadelphia - Cleveland 106-99 Chicago - LA Lakers 107-123 New Orleans - Milwaukee 113-130 Dallas - San Antonio 105-112 Denver - Minnesota 133-107 LA Clippers - Portland 104-125
NBA Mest lesið Óttast aðra martröð í boði íslenska tannlæknisins Fótbolti Haaland stefnir flugfélagi í Noregi Fótbolti Systir Ronaldos tók til varna og hraunaði yfir portúgölsku þjóðina Fótbolti Jesus sveik lærisveininn Fótbolti Yfirmenn Heimis teknir á teppið Fótbolti Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Enski boltinn „Ronaldo er elsta frekjudolla í heimi“ Sport Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Enski boltinn Guðjón Valur fær Orra óstöðvandi til Þýskalands Handbolti Tekur strax við sjöunni af Ronaldo Fótbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Sjá meira