Air Canada er eitt fjölmargra flugfélaga sem hefur þurft að bregðast við víðtækum kyrrsetningum á Boeing 737 MAX-þotunum. Um ástæðuna þarf vart að fjölyrða; tvö mannskæð slys á innan við hálfu ári. Boeing vinnur nú að hugbúnaðaruppfærslu og hefur fréttaflutningur síðustu daga bent til að uppfærslan sé á lokametrunum.
Þrátt fyrir það hefur Air Canada tekið ákvörðun um að fljúga ekki umræddum MAX-þotum fyrr en 1. júlí í fyrsta lagi, þrátt fyrir að hugbúnaðaruppfærslan verði tilbúin fyrir júnílok.
Í tilkynningu frá flugfélaginu er ástæðan fyrir þessu sögð vera aukið öryggi fyrir farþega. Þeir þurfi ekkert að velkjast í vafa um það hvort flugið þeirra falli niður eða ekki vegna kyrrsetningar 737 MAX því flugfélagið muni alfarið reiða sig á aðrar vélar næstu mánuði.
Þúsundir farþega á dag
Air Canada notaðist við 24 Boeing 737 Max vélar sem flugu um 6 prósent allra ferða og fluttu að meðaltali um 9 til 12 þúsund farþega á degi hverjum. Þar að auki hafði Air Canada í hyggju að bæta við sig sex slíkum vélum til viðbótar í mars og apríl.Kyrrsetning vélanna hefur því haft í för með sér umtalsvert rask á leiðakerfi Air Canada, rask sem einn af forsvarsmönnum fyrirtækisins lýsir sem „dómínó-áhrifum.“ Engu að síður er talið að Air Canada hafi tekist að fylla upp í 98% þeirra hola sem mynduðust í leiðakerfinu við kyrrsetninguna.

Þá segist félagið jafnframt ætla að hefja notkun á fjórum Airbus A31-þotum sem Air Canada keypti frá WOW Air í lok síðasta árs. Sala vélanna var sögð vera lokahnykkurinn í endurskipulagningu WOW air - sem eins og kunnugt er hefur barist í bökkum síðustu mánuði. Sjóðsstaða WOW á að hafa batnað um 12 milljónir dala við söluna.
Vélunum var flogið til Kanada í janúar síðastliðnum en við það urðu A321-þoturnar í flota Air Canada alls 19 talsins. Svo virðist þó sem flugfélagið hafi ekki reitt sig á nýju þoturnar fjórar fram til þessa ef marka má fyrrnefnda tilkynningu. Flotatölur Air Canada hafa ekki einu sinni verið uppfærðar til að taka mið af nýju þotunum.
Þoturnar eru með sæti fyrir 200 farþega en þessi tegund flugvéla getur þó rúmað sæti fyrir allt að 230 farþega. WOW hafði nýtt vélarnar í flugi sínu til Evrópu og Norður-Ameríku og var listaverð véla þessarar gerðar um 55 milljarðar íslenskra króna árið 2016. Þær voru keyptar með kaupleigusamningi til tíu ára og voru fjármagnaðar af erlendum bönkum.
Air Canada er stærsta flugfélag Kanada og flýgur til um 220 áfangastaða. Það er jafnframt meðal 20 stærstu flugfélaga heims og flutti um 51 milljón farþega í fyrra.