Mætti á stöðina og borgaði hraðasektina með klinki Atli Ísleifsson skrifar 14. apríl 2019 08:28 Myntin vó mörg kíló.
Ökumaður, sem staðinn hafði verið að hraðakstri, mætti nýverið á lögreglustöð á höfuðborgarsvæðinu og borgaði sektina með smámynt. Lögreglan segir frá þessu á facebook-síðu sinni þar sem birt er stutt myndband af peningunum sem komið var með í bláum IKEA-poka. „Nú á dögum kjósa flestir að nota heimabankann þegar greiðslur reikninga eru annars vegar og þannig spara sér tíma sem annars færi í útréttingar. Þetta er þó ekki algilt, en á dögunum kom á lögreglustöð ökumaður sem hafði verið staðinn að hraðakstri. Sá vildi gera hreint fyrir sínum dyrum og borga sektina umbúðalaust. Hann var með reiðufé meðferðis og mikið af því. Hraðasektir eru þó sjaldnast borgaðar með brosi á vör og það getur jafnvel verið þungt hljóðið í fólki þegar það kemur þessara erinda á lögreglustöð. Töluverð þyngsli áttu líka við í þessu tilviki, en samt í annarri merkingu orðanna því að smámyntin, sem maðurinn bar í hús og var notuð til að borga sektina, vó mörg kíló,“ segir í færslunni.
Lögreglumál Umferðaröryggi Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Innlent Fleiri fréttir Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Sjá meira