Strákarnir okkar fá að vita um verðandi andstæðinga á EM í dag Kristinn Páll Teitsson skrifar 28. júní 2019 11:00 Aron er að fara á sitt sjötta Evrópumót í janúar. Fréttablaðið/eyþór
Í dag þegar dregið verður í Vín, höfuðborg Austurríkis, kemur í ljós í hvaða riðli Strákarnir okkar, íslenska karlalandsliðið í handbolta, verða á Evrópumótinu 2020. Mótið hefst þann 9. janúar næstkomandi og fer fram í Austurríki, Noregi og Svíþjóð. Er þetta ellefta lokakeppni Evrópumótsins í röð þar sem Ísland er meðal þátttakenda. Þetta verður annað stórmót íslenska liðsins eftir að Guðmundur Þórður Guðmundsson tók við því á nýjan leik fyrir ári eftir að Ísland lenti í ellefta sæti á Heimsmeistaramótinu í Þýskalandi í janúar síðastliðnum. Ísland er í þriðja styrkleikaflokki ásamt Austurríki, Svartfjallalandi, Portúgal, Sviss og Lettlandi. Ísland er einum styrkleikaflokki fyrir neðan Norður-Makedóníu sem vann undanriðil Íslands og er í öðrum styrkleikaflokki þegar dregið verður á eftir. Tvö lið komast áfram í milliriðlana og alls fjögur lið fara áfram úr milliriðlunum í úrslitahelgina sem fer fram í Stokkhólmi undir lok janúar. Ljóst er að Ísland fer ekki í B-riðil þar sem heimamenn í Austurríki verða og eru því miklar líkur á því að Ísland leiki í Noregi eða Svíþjóð nema liðið fari með Króatíu í A-riðil sem fer fram í Graz. Þá er þetta síðasta tækifæri Íslands til að öðlast þátttökurétt á Sumarólympíuleikunum 2020. Komi Ísland heim með gullið frá EM tryggja strákarnir sér sæti á Ólympíuleikunum en önnur leið er að Ísland tryggi sér þátttökurétt í umspilsleikjum í mars næstkomandi með því að enda meðal efstu þjóða á Evrópumótinu.
EM 2020 í handbolta Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki Fótbolti Ítalir gera allt sem þeir geta fyrir Guardiola Fótbolti Fleiri fréttir „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Sjá meira