Málið snúist ekki um hvað Þórhildur sagði heldur hvernig hún sagði það Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 26. júní 2019 14:52 Þórhildur Sunna hefur sagt að álit siðanefndar sé rangt og röksemdarfærslan bæði ófullnægjandi og röng hvað varðar efni og aðferðarfræði. FBL/Ernir „
Siðareglur fyrir alþingismenn gera ekki ráð fyrir því að forsætisnefnd fari með úrskurðarvald um sannleiksgildi ummæla sem til skoðunar eru samkvæmt siðareglum fyrir alþingismenn.“ Þetta kemur fram í áliti forsætisnefndar Alþingis sem hefur fallist á álit siðanefndar sem komst að þeirri niðurstöðu að með því að hafa meðal annars sagt að rökstuddur grunur væri uppi um að Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefði dregið sér fé hefði Þórhildur Sunna brotið í bága við a- og c- lið 1. mgr. 5 gr. meginreglna um hátterni og hátternisskyldu 7. gr. siðareglna fyrir alþingismenn. Forsætisnefnd Alþingis sem hefur að undanförnu haft til umfjöllunar erindi Ásmundar, um meint brot þingmanna Pírata, þeirra Björns Levís Gunnarssonar og Þórhildar Sunnu Ævarsdóttur, hefur lokið meðferð sinni á málinu og birt álit sitt á vef Alþingis. Þórhildur Sunna baðst undan viðtali í bili vegna anna í laga- og mannréttindanefnd Evrópuráðsþingsins sem hún leiðir. Hún hyggst gefa út yfirlýsingu vegna álits nefndarinnar á næstunni.Sjá nánar: Álit forsætisnefndar AlþingisSegir ummæli sín hafa verið þau sömu og Þórhildar að inntaki Forsætisnefnd staðfesti einnig álit siðanefndarinnar um að ummæli Björns Levís væru ekki ósamrýmanleg umræddri grein siðareglna fyrir alþingismenn. Björn hefur áður látið í ljós furðu sína á þessum úrskurði og sjálfur sagt að ummæli sín hefðu verið þau sömu og Þórhildar Sunnu að inntaki.Sjá nánar: „Nú er rökstuddur grunur um að Ásmundur Friðriksson hafi dregið sér fé“ „Vissulega notaði ég ekki nákvæmlega sömu orðin og það getur vel verið að það skipti máli þegar siðanefnd leggur mat sitt á merkingu orðanna,“ sagði Björn í pontu Alþingis í maí síðastliðnum eftir að siðanefnd hafði gefið ráðgefandi álit sitt í málinu. Björn vildi í sömu ræðu taka af allan vafa um inntak orða sinna og sagði: „Nú er rökstuddur grunur um það að Ásmundur Friðriksson hefði dregið sér fé, almannafé, og við erum ekki að sjá viðbrögð þess efnis að það sé verið að setja á fót rannsókn í þeim efnum. Ég segi þessi orð með fullri vitneskju um að þau hafi verið dæmd sem brot gagnvart siðareglum þingmanna.“ Í áliti forsætisnefndar segir að skilyrði standi ekki til þess að verða við ósk Þórhildar Sunnu um að málið verði á ný lagt fyrir siðanefnd.Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, hefur sjálfur sagt að inntak orða sinna hefði verið hið sama og hjá Þórhildi.visir/vilhelmVildi að ummæli sín yrðu skoðuð út frá sannleiksgildi þeirra Í athugasemd sem Þórhildur Sunna sendi nefndinni 20. maí kemur fram að hún telji niðurstöðu siðanefndar ranga og að röksemdarfærslan fyrir henni sé bæði ófullnægjandi og röng hvað varðar efni og aðferðarfræði. Þá gerir hún auk þess sérstaka athugasemd við ummæli í bréfi forseta Alþingis 2. apríl 2019 um að „siðareglurnar og málsmeðferðarreglur [geri] ekki ráð fyrir því að forsætisnefnd fjalli um eða skeri úr um sannleiksgildi þeirra ummæla sem eftir eru höfð.“ Þingmenn Pírata hafa látið í ljós áhyggjur sínar af þeim áhrifum sem gætu hlotist af áliti siðanefndar og forsætisnefndar. Stjórnarandstaða í lýðræðissamfélagi hafi mikilvægu aðhaldshlutverki að gegna og hún verði að geta haft í frammi gagnrýni út frá þeim staðreyndum sem liggja fyrir í hverju máli fyrir sig. Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata og fulltrúi í forsætisnefnd, segir í samtali við fréttastofu að vegið sé að tjáningarfrelsi þingmanna með álitinu og tilgangi siðareglna snúið á haus. Þær hafi verið settar á að frumkvæði alþjóðlegra samtaka sem berjast gegn spillingu með það að markmiði að koma í veg fyrir hagsmunaárekstra og koma í veg fyrir að ráðamenn geti misnotað sjóði almennings.Sjá nánar: „Erum komin á mjög hættulegan stað sem réttarríki þegar það er siðabrot að segja sannleikann“ „Ég get ekki lesið þessi skilaboð á neinn annan hátt en að núna þarf ég, sem þingmaður, að fara bara mjög varlega með það hvað ég segi um mögulega spillingu því annars gæti ég fengið á mig úrskurð um að ég sé brotlegur við siðareglur. Þetta gerir ekkert annað en að styrkja samtrygginguna í stjórnmálum,“Álit meirihluta forsætisnefndar var birt á vef Alþingis ásamt fylgiskjölum málsins.Ekki skoðað út frá sannleiksgildi ummæla heldur út frá „siðferðislegum verðmætum“ Í álitinu segir að siðareglur fyrir alþingismenn geri ekki ráð fyrir því að forsætisnefnd fari með úrskurðarvald um sannleiksgildi ummæla sem til skoðunar eru samkvæmt siðareglum fyrir alþingismenn. Í áliti forsætisnefndar segir að leggja beri sérstaka áherslu að í málinu séu ummæli Þórhildar til skoðunar á grundvelli siðareglna fyrir alþingismenn en ekki á grundvelli þess hvort Ásmundur hefði farið á svig við reglur um endurgreiðslu aksturskostnaðar. „Af siðareglunum leiðir að það getur haft þýðingu hvernig tjáningu er komið á framfæri og við hvaða aðstæður. Þær skorður sem kunna að leiða af siðareglum fyrir alþingismenn lúta þá ekki að efni tjáningar heldur að ytri búningi hennar, t.a.m. háttvísi þeirra og ummæli á opinberum vettvangi, skuli samræmast þeim siðferðislegu viðmiðum sem fram koma í siðareglum fyrir alþingismenn.“ Þá segir jafnframt í álitinu að siðareglurnar hafi m.a. þann tilgang að efla ábyrgðarskyldu alþingismanna og tiltrú og traust almennings á Alþingi. „Siðareglunum er ætlað að standa vörð um þessi siðferðilegu verðmæti og hvetja þingmenn til góðra verka. Á þessum grundvelli er í siðareglunum settar fram meginreglur um hátterni og hátternisskyldur alþingismanna“
Alþingi Tengdar fréttir Hyggja á frekari aðgerðir gegn Ásmundi: „Erum komin á mjög hættulegan stað sem réttarríki þegar það er siðabrot að segja sannleikann“ Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata, er afar ósáttur við álit meirihluta forsætisnefndar Alþingis í máli Þórhildar Sunnu. Hann segir álitið snúa tilgangi siðareglna á haus. 26. júní 2019 11:45 Álit um brot Þórhildar Sunnu staðfest Forsætisnefnd hefur fallist á álit siðanefndar Alþingis í máli Þórhildar Sunnu Ævarsdóttir, þingmanns Pírata, og telur hana brotlega við siðareglur fyrir alþingismenn vegna ummæla um Ásmund Friðriksson. Þrír nefndarmenn eru með sérbókun vegna álitsins. 26. júní 2019 06:00 Skapar hættulegt fordæmi og rýrir tjáningarfrelsi þingmanna í stjórnarandstöðu Þórhildur Sunna Ævarsdóttir alþingismaður telur að álit siðanefndar Alþingis, um að hún hafi brotið siðareglur vegna ummæla sinna um Ásmund Friðriksson og akstursgreiðslur hans, skapi hættulegt fordæmi og takmarki tjáningarfrelsi alþingismanna í stjórnarandstöðu með óeðlilegum hætti. 17. maí 2019 12:30 Myndi „rústa trausti á Alþingi“ ef meirihluti nefndarinnar misnotar aðstöðu sína Jón Þór Ólafsson þingmaður Pírata segir að traust á siðareglum fyrir Alþingismenn glatist ef málsmeðferð forsætisnefndar á ábendingum um möguleg brot þingmanna á þeim er ekki hafin yfir vafa um óhlutdrægni og vandaða og réttláta málsmeðferð. 18. desember 2018 21:44 Formaður Samfylkingarinnar telur fyrirkomulag Alþingis um siðamál ótækt Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, telur fyrirkomulag Alþingis um siðamál vera ótækt. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingmaður Pírata segir álit siðanefndar þingsins, um að hún hafi brotið siðareglur með ummælum sínum um akstursgreiðslur Ásmundar Friðrikssonar, vera súrrealískt og kaldhæðnislegt. 17. maí 2019 19:15 Mest lesið Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Fleiri fréttir Launmorðingjar ráðnir hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann Sjá meira
Hyggja á frekari aðgerðir gegn Ásmundi: „Erum komin á mjög hættulegan stað sem réttarríki þegar það er siðabrot að segja sannleikann“ Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata, er afar ósáttur við álit meirihluta forsætisnefndar Alþingis í máli Þórhildar Sunnu. Hann segir álitið snúa tilgangi siðareglna á haus. 26. júní 2019 11:45
Álit um brot Þórhildar Sunnu staðfest Forsætisnefnd hefur fallist á álit siðanefndar Alþingis í máli Þórhildar Sunnu Ævarsdóttir, þingmanns Pírata, og telur hana brotlega við siðareglur fyrir alþingismenn vegna ummæla um Ásmund Friðriksson. Þrír nefndarmenn eru með sérbókun vegna álitsins. 26. júní 2019 06:00
Skapar hættulegt fordæmi og rýrir tjáningarfrelsi þingmanna í stjórnarandstöðu Þórhildur Sunna Ævarsdóttir alþingismaður telur að álit siðanefndar Alþingis, um að hún hafi brotið siðareglur vegna ummæla sinna um Ásmund Friðriksson og akstursgreiðslur hans, skapi hættulegt fordæmi og takmarki tjáningarfrelsi alþingismanna í stjórnarandstöðu með óeðlilegum hætti. 17. maí 2019 12:30
Myndi „rústa trausti á Alþingi“ ef meirihluti nefndarinnar misnotar aðstöðu sína Jón Þór Ólafsson þingmaður Pírata segir að traust á siðareglum fyrir Alþingismenn glatist ef málsmeðferð forsætisnefndar á ábendingum um möguleg brot þingmanna á þeim er ekki hafin yfir vafa um óhlutdrægni og vandaða og réttláta málsmeðferð. 18. desember 2018 21:44
Formaður Samfylkingarinnar telur fyrirkomulag Alþingis um siðamál ótækt Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, telur fyrirkomulag Alþingis um siðamál vera ótækt. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingmaður Pírata segir álit siðanefndar þingsins, um að hún hafi brotið siðareglur með ummælum sínum um akstursgreiðslur Ásmundar Friðrikssonar, vera súrrealískt og kaldhæðnislegt. 17. maí 2019 19:15