Menning

Kynna brasilíska og suður-ameríska tón­listar­menningu fyrir Ís­lendingum

Tinni Sveinsson skrifar
Hulda og Paulo.
Hulda og Paulo.
Hulda Geirlaugsdóttir og Paulo Malaguti halda tónleika í Hannesarholti í kvöld þar sem þau kynna fyrir áheyrendum eigin skilning á brasilískri og suður-amerískri tónlistarmenningu.

Tónleikarnir eru haldnir undir yfirskriftinni Brasilísk serenada og munu Paulo og Hulda miðla sitthverju af tónlistarferli sínum á þeim. Paulo flytur eigin tónsmíðar auk bossa-nova laga eftir Tom Jobim og Hulda leikur suður-amerísk píanóverk. Einnig koma fram boðsgestirnir Hrönn Geirlaugsdóttir á fiðlu og Sigurður Flosason á saxófón.





Paulo Malaguti og Hulda Geirlaugsdóttir kynntust í Boston þar sem þau voru við nám í New England Conservatory of Music, Hulda í klassískum píanóleik og Paulo í jazz tónsmíðum. Við fæðingu fyrsta barnsins, Þórs, fluttust þau til Ríó de Janeiro.

Paulo hefur unnið bæði sem píanisti og kórstjóri og er auk þess meðlimur og útsetjari í rótgrónum dægurlagasöngsveitum í Ríó de Janeiro. Hulda náði doktorsgráðu í tónlist árið 2018 með ritgerð um 12 Hornavalsa fyrir píanó eftir brasilíska tónskáldið Francisco Mignone.

Lagalista kvöldsins má finna á heimasíðu Hannesarholts. Miðasala er við innganginn sem og á Tix.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.