Safnar fyrir málsókn vegna flugslyss föður Garðar Örn Úlfarsson skrifar 16. júlí 2019 06:00 Wagstaff systkinin með föðurömmu sinni. Sarah er önnur frá hægri. „
Ég hef fundið mikinn stuðning frá fólki á Íslandi sem trúir á málstað okkar,“ segir Sarah Wagstaff, dóttir Grants Wagstaff sem lést í flugslysi á Íslandi. Beaver flugvélin N610LC fórst 9. ágúst 2015, um 45 mínútum eftir flugtak frá Akureyri. Grant Wagstaff sem til stóð að myndi ferja vélina til Bandaríkjanna lifði af en komst ekki úr flakinu og lést af völdum elds. Arngrímur Jóhannsson, eigandi flugvélarinnar og flugmaður þennan dag, slasaðist. Sarah og systkini hennar eru ekki efnuð. Fyrir nokkrum vikum efndi hún til söfnunar á vefsíðunni gofundme.com til að standa straum af kostnaði þeirra vegna reksturs málsins fyrir dómstólum á Íslandi. Hún hyggst stefna Sjóvá sem neitar að greiða bætur og kveðst jafnframt líklega munu stefna Arngrími. Safnast höfðu 1.250 dalir í gær. „Við vonumst til að safna 50 þúsund kanadískum dollurum fyrir ferða og lögmannskostnaði,“ segir Sarah sem kveðst virkilega vonast til að komast til Íslands vegna málsins. „Ég hef ekki haft tök á að fara að slysstaðnum til að kveðja föður minn svo ég er að vonast til þess að geta gert það þegar ég kem til að fylgjast með réttarhöldunum. Mig langar líka að geta komið upp minnismerki um föður minn á staðnum sem hann lést.“Sarah Wagstaff.Sarah segir að lögmaður Roslyn móður hennar hjá Opus lögmönnum hafi þegar stefnt Sjóvá og Arngrími. Sarah og systkini annars vegar og móðir þeirra hins vegar reka aðskilin mál, meðal annars vegna þess að Sarah telur að lögmannsstofan Opus hafi sýnt af sér vanrækslu við rekstur málsins. Sem fyrr segir kveðst Sarah hafa fundið mikinn stuðning frá Íslandi. „Margir lýsa þeirri skoðun að Opus hafi farið illa með málið og þetta styrkir mig í þeirri trú að við séum á réttri leið,“ segir Sarah. Að því er Sarah segir fékk móðir hennar samþykkta gjafsókn frá íslenska ríkinu. Lögmaður systkinanna á Íslandi hefur slíka umsókn í undirbúningi vegna málareksturs þeirra. Það muni ekki skýrast fyrr en eftir nokkra mánuði hvort þau fái einnig gjafsókn. „Ég vonast til að geta stefnt Opus fyrir vanrækslu og Sjóvá til greiðslu bóta,“ segir hún. Aðspurð hvað verði um söfnunarfé frá gofundme.com ef gjafsóknin fæst segir hún gjafsóknarpeningana ekki duga fyrir öllum kostnaði þeirra systkina vegna málsins. „Peningunum verður varið til að koma fjölskyldunni til Íslands til að vera viðstödd dómsmálið og hugsanlega vegna lögmannskostnaðar í Bandaríkjunum þar sem enn er verið að skoða hvort grundvöllur sé til málsóknar í ljósi þess að flugvélin var skráð sem eign sjóðs í umsjón Wells Fargo bankans,“ segir Sarah Wagstaff. Grant Wagstaff.
Akureyri Birtist í Fréttablaðinu Flugslys í Barkárdal Fréttir af flugi Hörgársveit Samgönguslys Tengdar fréttir Kanadísk flugmannsekkja fær ekkert frá Sjóvá og ætlar í hart Engar bætur fást vegna Kanadamannsins Grants Wagstaff sem fórst er Arngrímur Jóhannsson brotlenti flugvél sem flytja átti úr landi í ágúst 2015. 8. mars 2019 07:00 Arngrímur tjáir sig um flugslysið: Sat við hliðina á látnum vini sínum án þess að geta gert neitt "Ég fæ oft "flashback“ og upplifi aftur þær mínútur sem við höfðum áður en vélin brotlenti.“ 3. mars 2017 11:44 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira
Kanadísk flugmannsekkja fær ekkert frá Sjóvá og ætlar í hart Engar bætur fást vegna Kanadamannsins Grants Wagstaff sem fórst er Arngrímur Jóhannsson brotlenti flugvél sem flytja átti úr landi í ágúst 2015. 8. mars 2019 07:00
Arngrímur tjáir sig um flugslysið: Sat við hliðina á látnum vini sínum án þess að geta gert neitt "Ég fæ oft "flashback“ og upplifi aftur þær mínútur sem við höfðum áður en vélin brotlenti.“ 3. mars 2017 11:44