Forsetinn lýsir yfir neyðarástandi í Louisiana Vésteinn Örn Pétursson skrifar 12. júlí 2019 21:56 Þegar er vatn tekið að flæða hressilega um götur New Orleans en búist er við mun meiri flóðum á næstu dögum. Vísir/Getty
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur lýst yfir neyðarástandi í Louisiana-ríki þar sem styttist í að stormur komi að landi. Stormurinn, sem hefur verið nefndur Barry, nálgast nú ríkið á nokkrum hraða en hann er nú á Mexíkóflóa. Hraði stormsins hefur aukist undanfarna daga. Yfirvöld í Bandaríkjunum segja vindhraðann vera kominn upp í um 22 metra á sekúndu og að hraðinn gæti aukist þannig að Barry komi til með að flokkast sem fellibylur þegar hann nær landi. Gert er ráð fyrir mikilli úrkomu og hvössum vindhviðum í New Orleans, höfuðborg Louisiana, en síðustu daga hefur flóða gætt í borginni. Auk þess hafa þrumur og eldingar verið viðvarandi. Veðurstofa Bandaríkjanna segir flóðin sem fylgja veðurofsanum vera það sem varast þurfi hvað mest og varað er við úrkomu á bilinu 25 til 50 sentimetrar. Það bætist ofan á þá staðreynd að Mississippifljót, vatnsmesta fljót Bandaríkjanna, er nálægt því að flæða yfir bakka sína. Það að forsetinn hafi lýst yfir neyðarástandi á svæðinu opnar fyrir möguleika á því að nota ýmiskonar úrræði, til þess að fyrirbyggja tjón á fólki og öðru, sem annars eru ekki á valdi einstakra ríkja.
Bandaríkin Mest lesið Kvaddi hundinn sem bjargaði lífi hennar uppi í rúmi Innlent Mannfallið að nálgast tvær milljónir Erlent Innlit á Litla-Hraun í erlendri heimildarmynd Innlent Svíar líta til kjarnorkuvopna Erlent Tónninn breytist með yfirmannaskiptum hjá ICE Erlent Þrír eldar á sama tíma á höfuðborgarsvæðinu Innlent Sjóðir að tæmast og uppsagnir í kortunum Innlent Samstarf um farsímasjónvarp Innlent Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Innlent Engar kveðjur fengið frá Kristrúnu Innlent Fleiri fréttir Svíar líta til kjarnorkuvopna Tónninn breytist með yfirmannaskiptum hjá ICE Mannfallið að nálgast tvær milljónir Svíar hyggjast lækka sakhæfisaldur „Móðir allra samninga“ Um þriðjungur Dana fær 50 þúsund króna „matartékka“ beint í vasann frá ríkinu Segja mögulegt að yfir 30.000 hafi verið drepin í mótmælunum Franska þingið samþykkti símabann hjá börnum Evrópusambandið og Indland ganga frá fríverslunarsamningi Bovino sendur til Kaliforníu og Leavitt dregur í land Lét þingmenn heyra það og sagði Evrópu ekki geta varið sig sjálfa Trump sagður hafa lofað óháðum rannsóknum í Minnesota Einn lifði flugslys í Maine af en sjö dóu Hafa fundið lík síðasta gíslsins á Gasa Börnin heima þegar móðir þeirra var stungin til bana Flugferðum aflýst og hvatt til heimavinnu vegna snjókomu Leita að líkamsleifum síðasta gíslsins Morðið á Pretti gagnrýnt úr ólíklegustu áttum Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Annar maður skotinn til bana af ICE Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Sjá meira