Vill koma smá fjöri aftur í starf ÍBV Benedikt Bóas skrifar 2. ágúst 2019 06:00 Eiður Aron, leikmaður Vals, þótti ekki nógu góður til að koma aftur í uppeldisfélag sitt, ÍBV. Síðan sú ákvörðun var tekin hefur lítið gengið upp hjá félaginu. Fréttablaðið/Eyþór „
Ég var heima að setja rómantíska gamanmynd í tækið með konunni og var beðinn um að koma á fund, einn, tveir og bingó, í Týsheimilinu. Það var mikill heiður að vera boðið þetta hlutskipti, formaður knattspyrnuráðs, og ég ákvað að slá til,“ segir Daníel Geir Mortiz. Daníel flutti til Vestmannaeyja síðasta sumar og kennir í grunnskólanum. Hann er íþróttaáhugamönnum að góðu kunnur fyrir hlutverk sitt í Innkasti á fótbolta. net og viðtöl á sama miðli sem vöktu iðulega athygli. „Ég var trúlega búinn að vera starfsmaður í grunnskólanum í fimm mínútur þegar það var fyrst komið að máli við mig að koma í knattspyrnuráð. Þá vildi ég ekki taka slaginn. Hugsaði samt að að þarna væri búið að sá fræi. Svo fór ég að segja við þá sem maður var að hitta á förnum vegi að ég gæti nú alveg hugsað mér að koma inn í þetta eftir verslunarmannahelgi því ég var með svo mörg verkefni í sumar. Síðan verður þjálfarabreyting og þá höfðu þeir sem höfðu verið í ráðinu samband og mátu það sem svo að það væri miður að taka einhverjar ákvarðanir sem aðrir sem kæmu hugsanlega inn í ráðið yrðu bundnir af. Þeir hringdu í mig og ég var spurður hvort ég hefði áhuga að koma inn sem formaður og það strax.“Skynsemin sigraði hjartað Frá því Daníel hefur komið inn hefur verið töluvert að frétta úr herbúðum ÍBV. Fyrirliði þeirra, Sindri Snær Magnússon, var seldur til ÍA, markaskorarinn Guðmundur Magnússon fór í Víking Ólafsvík og starfslokasamningar hafa verið gerðir við Alfreð Má Hjaltalín sem hefur verið meiddur í allt sumar og Gilson Correia. Þá er liðið neðst í deildinni með aðeins fimm stig, 12 stigum frá öruggu sæti. Daníel segir að það sé þó ekki verið að henda inn handklæðinu með því að losa þessa leikmenn. „Alfreð Már bað um að fá að fara. Þetta var farið að setjast á sálina á honum að geta ekki hjálpað liðinu. Hann er góður leikmaður og góður drengur og sjálfsagt að verða við því og losa hann. Gilson var bara ekki nógu góður í þessa deild en toppmaður. Gummi Magg var ósáttur og vildi fara. Allt þetta finnst mér vera eðlilegt. Sindri Snær, það horfir aðeins öðruvísi við. Það var alveg ljóst að hann ætlaði sér að nýta uppsagnarákvæðið í samningi sínum og það voru þrír mánuðir eftir þar til það ákvæði yrði virkt og þá hefði verið óábyrgt að taka ekki þessu tilboði, sem var mjög gott. Okkur langaði ekki að selja hann en stundum þarf skynsemin að sigra hjartað. Okkur fannst líka jákvætt að þetta er spennandi tilboð fyrir hann. Hann hafði úrslitavaldið og þetta var sett í hendurnar á honum. Það segir ákveðna sögu að hann hafi tekið tilboði ÍA en við skiljum í mesta bróðerni. Hann hefur reynst ÍBV vel síðustu ár og við bindum vonir við að þeir sem eru í liðinu stígi upp og standi saman.“Leiðinlegt að halda með ÍBV Lítið hefur komið Daníel á óvart þessa daga sem hann hefur verið með puttann á púlsinum. Þó hefur það vakið athygli hjá honum hversu lítil stemning er innan félagsins. „Það kom mér smá á óvart þegar ég flutti til Eyja og var búinn að búa hérna í eitt ár hvað það var í raun leiðinlegt að halda með ÍBV. Það er í raun þannig að það kemur lítið frá deildunum sjálfum að gera eitthvað skemmtilegt saman. Einhver stuðningsmannakvöld, karla- og kvennakvöld eða árshátíð eða hvað sem er. Einhverjir viðburðir. Það hefur of lítið verið gert en það sem er gert er vel gert. Ég hélt að hér væru reglulega hittingar, fólk að taka kaffi og að menn væru saman í þessu. Þannig var það víst. Ég lít líka á það sem hlutverk mitt að breyta þessu. Að við sem félag förum að vinna að því að það sé aftur gaman að halda með ÍBV og það sé stemning hjá félaginu. Ég lít svo á að verkefni mitt sé ekki bara fótboltalegs eðlis heldur líka utan vallar.“ Daníel hefur töluverða reynslu af að koma viðburðum af stað og skipulagði franska daga í ár sem heppnuðust vel. Þá er ekki leiðinlegt að vera í kringum Daníel. „Ég geri miklar kröfur til mín á þessu sviði og ég er með þær væntingar að þeir sem eru með mér í þessu finni það að það sé hægt að hafa meiri gleði í þessu. Í gamla daga fengu þessir skemmtilegu Eyjakarakterar að njóta sín og þetta er eitthvað sem mér finnst spennandi að endurvekja í einhverri mynd.“ Aðspurður um fjárhag deildarinnar segir hann að það sé hlutur sem hann sé ekki kominn inn í að fullu ennþá. Samkvæmt ársreikningi tapaði deildin 10 milljónum króna. Rekstrartekjurnar voru 152 milljónir króna en rekstrargjöldin 162. „Ég hef ekki alveg komist inn í þessa hluti á þessum stutta tíma en við viljum tileinka okkur ábyrgan rekstur. Þess vegna seldum við Sindra til dæmis. ÍBV þarf að greiða meira en önnur lið fyrir ferðalög og ýmislegt annað en ég á eftir að læra betur á það. Ég held samt að það sé auðveldara að reka knattspyrnudeild þegar það er gaman og meira fjör.“ Þrátt fyrir nánast vonlausa stöðu er Daníel hvergi smeykur og hlakkar til komandi verkefna. „Ég hugsaði þegar ég var beðinn um að koma inn í þetta að þetta eru krefjandi aðstæður í ljósi gengisins. En ég var og er sannfærður um að hvernig sem fer þá stendur maður í haust frammi fyrir skemmtilegum verkefnum. Ég hef það mikinn áhuga að ég get ekki beðið eftir að horfa í baksýnisspegilinn eftir 10 ár og sjá hvernig hefur gengið. Ég sé fyrir mér að geta verið í þessu lengi og að þetta verði erfitt en skemmtilegt.“
Birtist í Fréttablaðinu Fótbolti Vestmannaeyjar Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Aston Villa í mál við Jamie Carragher Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Fjórði sigur Valskvenna í röð Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Stólarnir reka Israel Martin og Hlynur Freyr fær stöðuhækkun Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Báðir þjálfararnir fengu rautt í hálfleik í toppslagnum Ísak lagði upp sigurmarkið Sænska ríkisstjórnin vill stöðva þátttöku Rússa á HM Hætta við áform um Afríkukeppnina í fótbolta Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Rosalegt pílukvöld á Selfossi „Mér finnst ég vera byggður öðruvísi“ „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Emil vill vera hjá Rúnari og hvað segir mamma hans Magga? Nik Chamberlain rekinn frá Kristianstad Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars Ældi blóði, braut rifbein, fór á spítala og svo aftur inn á völlinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Missti af leik með KR vegna herskyldu Sjá meira