Ragnar Kjartansson hlýtur finnsku Ars Fennica verðlaunin Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 21. ágúst 2019 15:43 Listamaðurinn Ragnar Kjartansson hlaut virt finnsk verðlaun í dag. Daníel
Listamaðurinn Ragnar Kjartansson hlaut í dag hin virtu finnsku Ars Fennica verðlaunin við hátíðlega athöfn í Amos Rex safninu í Helsinki, höfuðborg landsins. Sjóðurinn veitir verðlaunin annað hvert ár til myndlistarmanns sem þykir hafa skarað fram úr og eru verðlaunin 40.000 evrur. Aðeins einn Íslendingur, Hreinn Friðfinnsson, hefur hlotið verðlaunin áður. Ars Fennica sjóðurinn var stofnaður af hjónunum Henna og Pertti Niemistö árið 1990. Markmið sjóðsins er að örva listsköpun, skapa alþjóðleg tengsl í heimi myndlistar og vekja áhuga almennings á listum. Í ár valdi Roland Wetzel, safnvörður Tinguely safnsins í Basel í Sviss, vinningshafann fyrir hönd sjóðsins.Ragnar veitti verðlaununum viðtöku á listasafni í Helsinki í dag.Ragnar þarf vart að kynna en hann fæddist í Reykjavík árið 1976 og býr þar og starfar. Hann útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands árið 2001 og stundaði nám við Konunglegu listaakademíuna í Stokkhólmi árið 2000. Ragnar hefur haldið ótal einkasýningar víða um heim eins og í New York, Chicago, Peking, Lundúnum, Kaupmannahöfn og París. Gjörningar, uppákomur og hópsýningar Ragnars spanna margra ára tímabil. Ragnar kemur úr skapandi fjölskyldu en til gamans má geta að fréttastofa ræddi við Guðrúnu Ásmundsdóttur, leikkonu, leikstjóra og leikskáld móður Ragnars og Sigrúnu Eddu Björnsdóttur, leikkonu síðasta sumar þegar þær hlutu báðar Grímuverðlaun. Í viðtalinu ræddu þær um hina listrænu og líflegu fjölskyldu.
Finnland Menning Myndlist Tengdar fréttir Verðlaunamæðgurnar: „Þessi kona hefur alltaf staðið við bakið á mér“ Mæðgurnar Guðrún Ásmundsdóttir og Sigrún Edda Björnsdóttir hlutu báðar Grímuverðlaun fyrir framlag sitt í þágu sviðslista. 15. júní 2018 13:00 Ég er hætt að flýja „Það hefur verið svartur skuggi á sálinni í langan tíma,“ segir tónlistarkonan Kristín Anna Valtýsdóttir. Hún dró sig inn í skel í kjölfar erfiðrar reynslu og hélt listsköpun sinni að miklu leyti út af fyrir sig. Hún gaf nýverið út plötuna I Must Be The Devil. 6. apríl 2019 08:15 Mest lesið Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Lífið Grætur enn að hafa misst af símtalinu Lífið Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Lífið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Lífið Ákvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað Tíska og hönnun Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira Lífið Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Lífið Fleiri fréttir Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels? Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Sex hundruð sungu fyrir Brynhildi Málverk af Danakonungi vekur athygli Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Sjá meira
Verðlaunamæðgurnar: „Þessi kona hefur alltaf staðið við bakið á mér“ Mæðgurnar Guðrún Ásmundsdóttir og Sigrún Edda Björnsdóttir hlutu báðar Grímuverðlaun fyrir framlag sitt í þágu sviðslista. 15. júní 2018 13:00
Ég er hætt að flýja „Það hefur verið svartur skuggi á sálinni í langan tíma,“ segir tónlistarkonan Kristín Anna Valtýsdóttir. Hún dró sig inn í skel í kjölfar erfiðrar reynslu og hélt listsköpun sinni að miklu leyti út af fyrir sig. Hún gaf nýverið út plötuna I Must Be The Devil. 6. apríl 2019 08:15