Villtist tvisvar áður en útkallið barst Kristín Ólafsdóttir skrifar 5. september 2019 18:55 Rétt upp úr klukkan fimm mættust göngumaðurinn og björgunarsveitarmaðurinn á Kattarhryggjum. Vísir/vilhelm
Björgunarsveitir á Suðurlandi voru kallaðar út snemma á fimmta tímanum í dag vegna göngumanns sem hafði villst við Útigönguhöfða í Þórsmörk neðan við Morrinsheiði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörg. Maðurinn lagði af stað í gönguferð frá Básum fyrr í dag og ætlaði að ganga að Útigönguhöfða, þaðan upp á heiðina og niður gönguleiðina af Fimmvörðuhálsi. Í tilkynningu segir að sá hluti af leiðinni sé nokkuð fáfarin og göngustígurinn því ógreinilegur á köflum. Maðurinn hafi enda villst í tvígang áður en útkallið barst. Björgunarsveitamaður sem var staddur í Básum lagði af stað í átt að manninum og aðrir komu akandi í Þórsmörk. Illa gekk að ná sambandi við manninn til að reyna að staðsetja hann nánar, að því er fram kemur í tilkynningu. Rétt upp úr klukkan fimm mættust göngumaðurinn og björgunarsveitarmaðurinn á Kattarhryggjum. Þá hafði göngumaðurinn fundið göngustíginn og var á leiðinni niður í Þórsmörk, þar sem samferðafólk hans beið. Á sjötta tímanum var hann því á leiðinni í Bása í fylgd björgunarsveitarmannsins.
Björgunarsveitir Rangárþing eystra Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi Sjá meira