Bifreið sem stolið var af bílaleigu í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum fyrir nokkrum dögum fannst á malarplani á Ásbrú í vikunni, er fram kemur í tilkynningu frá lögregluembættinu. Búið var að fjarlægja afturljós, framljós og grill, mælaborð, miðstöð, snertiskjá, og útvarp úr bílnum þegar hann fannst.
Lögregla rannsakar nú málið en ekki fengust frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.
Innlent