„Vantar upp á fagmennskuna hjá Barkley“ Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 27. nóvember 2019 07:00 Ross Barkley hefur gert heldur mikið af því að komast í fyrirsagnirnar vegna atburða utan vallar vísir/getty
Frank Lampard hefur gagnrýnt Ross Barkley fyrir að sýna ekki af sér næga fagmennsku í ljósi mynda af honum berum að ofan á nætúrklúbbi. Barkley var ekki í enska landsliðshópnum í nýliðnum landsliðsglugga svo hann var í fríi. Nýtti hann fríið vel og birtust myndir af honum í ensku slúðurblöðunum berum að ofan úti á lífinu. Þetta er í annað sinn á stuttum tíma sem hann kemst í fréttirnar fyrir atvik utan vallar, en honum lenti saman við leigubílsstjóra fyrr á tímabilinu. Knattspyrnustjórinn Frank Lampard hefur sagt Barkley að hann þurfi að taka sig taki, en Barkley fór ekki með liði Chelsea til Valencia. Barkley hefur þó verið að glíma við ökklameiðsli á síðustu vikum. „Þetta eru tvö aðskilin atriði, annað þeirra eru fyrirsagnirnar í þessari viku,“ sagði Lampard. „Ross veit hvað mér fanst um fyrra atvikið. Ég stóð við bakið á honum þá og ég geri það enn.“ „En hann sýndi ekki nógu mikla fagmennsku að mínu mati.“ „Ég vil ekki setja of mikið út á þetta, því ég skil að leikmennirnir eru manneskjur og lifa sínu lífi. Ég stjórna ekki hverju augnabliki í lífi þeirra svo mér finnst hann ekki hafa gert neitt hræðilegt.“ Chelsea mætir Valencia í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 frá klukkan 17:45.
Enski boltinn Mest lesið Segjast ekki eiga pening og konunum fórnað Handbolti Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Enski boltinn Uppgjörið: Slavia Prag - Valur 22-22 | Valskonur í undanúrslit EHF-bikarsins Handbolti Segja Bandaríkin ekki tilbúin fyrir HM og Ólympíuleika Sport Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Enski boltinn Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Fótbolti Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Fótbolti Í beinni: Ísland - Tyrkland | Strákarnir geta tryggt sig inn á EM Körfubolti Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Fótbolti Fleiri fréttir „Við þurfum annan titil“ Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah „Eigum skilið að finna til“ Asensio hetjan í endurkomu Villa Öruggur sigur Spurs og Wolves vann óvænt Bitlausu liði Arsenal mistókst að minnka forskot Liverpool Moyes: Greinilegt peysutog en við áttum að vera komnir í 3-0 Amorim: Við þurfum að lifa þetta tímabil af Hætti við að dæma víti og United slapp með jafntefli Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham Brentford bætti við algjöra martröð Leicester Ratcliffe þekkti ekki fyrirliða kvennaliðsins Arsenal aldrei aflað meira en tapaði samt þremur milljörðum Hafa verið þrettán ár af lygum „Frábær leikur en ég er ekki ánægður með úrslitin“ Jafntefli niðurstaðan í frábærum leik á Villa Park Kostaði Man. United meira en 2500 milljónir að reka Ten Hag og Ashworth Casemiro fer ekki fet Arsenal lét heitasta framherjann í frönsku deildinni fara fyrir „slikk“ Antony með fleiri mörk í febrúar en allt Man. United liðið Segir að Amorim þurfi 2-3 félagaskiptaglugga til að laga hópinn Sektaðir fyrir að öskra á Michael Oliver Arnór laus úr prísund Blackburn Biður til Guðs að Arsenal taki titilinn Pep varð fyrst hræddur um Haaland en er nú vongóður Sjá meira