Til vandræða í leigubíl Kristín Ólafsdóttir skrifar 1. desember 2019 07:40 Maðurinn var handtekinn en látinn laus skömmu síðar. Vísir/vilhelm
Leigubílstjóri óskaði í nótt eftir aðstoð lögreglu vegna farþega sem svaf ölvunarsvefni í leigubíl hans. Í dagbók lögreglu segir að tekist hafi að vekja farþegann en hann neitaði þá að segja til nafns eða gefa upp kennitölu. Þá neitaði hann einnig að greiða fyrir akstur leigubílsins. Farþeginn var handtekinn en látinn laus eftir að búið var að staðfesta hver hann væri. Þá var óskað eftir aðstoð lögreglu á skemmtistað í Grafarvogi þar sem ráðist hafði verið á dyravörð. Ekkert er frekar skráð um málið í dagbók lögreglu. Tilkynnt var um einstakling sem „gekk á milli strætisvagna“ á athafnasvæði Strætó við Hestháls. Lögregla hafði ekki frekari upplýsingar um málið í tilkynningu.Á stolnum bíl í miðbænum Þá voru tveir einstaklingar handteknir eftir að þeir höfðu verið stöðvaðir á stolinni bifreið í miðbænum í gærkvöldi. Ökumaðurinn er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna, að aka sviptur ökuréttindum og vörslu fíkniefna. Tilkynnt var um líkamsárás utan við veitingastað í miðbænum á tíunda tímanum í gærkvöldi. Tveir einstaklingar voru handteknir en látnir lausir að lokinni skýrslutöku. Óskað var eftir aðstoð lögreglu á veitingastað í miðbænum skömmu fyrir klukkan ellefu vegna einstaklings sem var þar til vandræða. Í dagbók lögreglu segir að einstaklingurinn hafi ekki getað gefið upp hver hann væri og hafi ekki verið með nein skilríki á sér. Viðkomandi gistir fangaklefa þar til hægt verður að ræða við hann. Þá handtók lögregla mann sem grunaðan er um að hafa brotið rúðu í miðborginni á þriðja tímanum í nótt. Hinn grunaði reyndi að flýja lögreglumenn en þeir höfðu að endingu hendur í hári hans.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Bíði og bíði eftir Bjarna Innlent Fleiri fréttir Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Sjá meira