Viðskipti innlent

„Bankarnir eru nú hluti af lausninni ekki vandamálinu“

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka segir forgangsmál að aðstoða viðskiptavini gegnum kreppuna. Bankarnir séu hluti af lausninni nú en ekki vandamálinu.
Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka segir forgangsmál að aðstoða viðskiptavini gegnum kreppuna. Bankarnir séu hluti af lausninni nú en ekki vandamálinu. Vísir/Einar

Bankastjóri Arion banka segir efnahagssamdrátt vegna áhrifa af kórónuveirufaraldrinum meiri en í fjármálakreppunni árið 2008. Hins vegar sé efnahagslífið mun betur í stakk búið að takast á við kreppuna nú en þá. Bankarnir séu nú hluti af lausninni en ekki vandanum.

Samanlagt rekstrartap Íslandsbanka, Landsbanka og Arion banka fyrstu þrjá mánuði ársins er 7,2 milljarðar króna. Þar af er virðisrýrnun útlána stór þáttur en samanlagt hjá öllum bönkunum er hún metin 11,5 milljarða.

Rekstrartap Landsbanka var 3,6 milljarða króna og virðisrýrnun útlána 5,2 milljarðar á tímabilinu. Rekstrartap Íslandsbanka var 1,4 milljarðar og virðisrýrnun útlána 3,5 milljarðar. Sama tap hjá Arion banka var 2,2 milljarðar og virðisrýrnunarútlánatap um 2,8 milljarðar.

Seðlabankinn og bankarnir hafa unnið að útfærslu brúar-og stuðningslána til fyrirtækja vegna kórónuveirufaraldursins. 

Við sögðum frá því í gær að stjórnvöld hafi framlengt hámarksábyrgð ríkisins á viðbótarlánum um eitt ár og nær ábyrgð ríkissjóðs nú til 30 mánaða. Íslandsbanki hefur þegar tilkynnt að hann ætli að veita brúarlán.

Nýtist ferðaþjónustu

Benedikt Gíslason bankastjóri Arion banka sagðist í fréttum gera ráð fyrir að fjöldi fyrirtækja sæki um brúar-og stuðningslán og lokunarstyrki. 

Hann segir að nú þegar hafi 11% af lántakendum íbúðalána fengið greiðsluhlé og 9% af fyrirtækjalánum séu í greiðsluhléi. Hann vonast til að undirrita samning við Seðlabankann á næstunni vegna stuðningslána með ríkisábyrgð.

„Stuðnings-og brúarlánin ásamt lokunarstyrkjum eru mikilvæg úrræði og munu nýtast sérstaklega fyrirtækjum í ferðaþjónustu því þar er mikið tekjufall sem er skilyrði fyrir þessum útlánum,“ segir Benedikt. 

Hann segir efnahagsdýfuna nú snarpari en 2008 en efnahagslíf landsins sé betur í stakk búið að takast á við hana en þá.

„Það er augljóslega meiri efnahagssamdráttur nú en þá og hann hefur áhrif á fleiri störf. Hins vegar eru efnahagsreikningar ríkisins, bankanna og heimila með allt öðrum  hætti nú en þá. Það er miklu minni skuldsetning.  Þess vegna er geta til að fást við samdráttinn miklu meiri. Nú er hægt að veita lán og þar þurfa bankar að standa sig, þeir eru reknir með allt öðrum hætti en þá og eru með miklu hærra eigin- og lausafjárhlutfall nú en þá. Þeir eru hluti af lausninni en ekki vandamálinu,“ segir Benedikt. 


Tengdar fréttir

Íslandsbanki veitir fyrirtækjum brúarlán

Íslandsbanki hefur tekið ákvörðun um að taka þátt í veitingu brúarlána til fyrirtækja en skrifað var undir samning þess efnis í dag milli Seðlabanka Íslands og Íslandsbanka.

Ferðaþjónustan riðar til falls

Á dögunum birti ríkisstjórnin aðgerðarpakka 2 sem hafði vissulega margar góðar hliðar. Það var sérstaklega ánægjulegt að sjá að heilbrigðisstarfsmenn koma til með að fá bónusgreiðslu fyrir sín störf á þessum erfiðu tímum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×