„Þetta lítur mjög vel út,“ segja landsliðskonurnar Dagný Brynjarsdóttir og Anna Björk Kristjánsdóttir sem ætla sér að berjast um Íslandsmeistaratitilinn í fótbolta með Selfossi í sumar.
Selfyssingar urðu bikarmeistarar í fyrra og hafa síðan fengið afar sterka leikmenn, til að mynda í Dagnýju og Önnu Björk.
„Við erum nokkrar nýjar þannig að eftir samkomubannið erum við búnar að reyna að púsla okkur betur saman og spila æfingaleiki, og það er mikilvægt að við séum klárar í fyrsta leik. Við höfum núna tvær vikur til stefnu,“ sagði Dagný í Sportinu í dag. Breiðablik og Valur töpuðu ekki leik á síðustu leiktíð en fá væntanlega meiri samkeppni í sumar:
„Ég veit að við verðum í toppbaráttunni, þannig að við munum gefa þeim góða keppni. Ég held að deildin verði sú sterkasta sem verið hefur á Íslandi í langan tíma og það eru önnur lið þarna. Ég hef ekki séð mikið af Þór/KA en Fylkir er með sterkt lið, ÍBV er að bæta mörgum útlendingum við sig, og fleira, þannig að ég held að þetta verði mjög spennandi og maður þarf klárlega að gefa allt í alla leiki. Maður má ekki tapa mörgum stigum því þá er maður farinn úr toppbaráttunni,“ sagði Dagný, og ljóst af öllu á Selfossi að þar er stefnt á titil:
„Það er bara þannig. Hér hefur verið mikil uppbygging. Fyrirliði U17-landsliðsins verður með Önnu Björk í miðverðinum, við erum með bakvörð í U19-landsliðinu, og fleiri ungar eru að koma upp. Svo er bara lagt mikið í kvennaboltann hérna, og komið eins fram við okkur eins og strákana. Við fáum jafnmikið og þeir og ég held að það sé að skila sér,“ sagði Dagný.
Alltaf sagt að við höndlum ekki umfjöllun en við fögnum henni
Anna Björk segir ýmsar ástæður fyrir því að hún valdi Selfoss fram yfir sitt uppeldisfélag KR eða önnur lið:
„Mér fannst metnaðurinn og stemningin í Selfossi heilla mjög mikið. Svo skoðaði ég líka hópinn, þekki Dagnýju og Fríðu [Hólmfríði Magnúsdóttur] mjög vel og fannst spennandi að spila með þeim, og svo er fullt af ungum og efnilegum leikmönnum hér. Það var margt sem að small saman hérna og mér fannst mjög spennandi að prófa nýtt lið sem að enginn bjóst við [að ég færi til],“ sagði Anna.
Talsvert hefur verið rætt um launamál hennar eftir stóryrtar yfirlýsingar í hlaðvarpsþættinum Dr. Football en Anna Björk virðist ekki kippa sér upp við það:
„Ég held að við séum kannski óvanar því í kvennafótbolta [að rætt sé um launamál leikmanna] en ég held að það sé samt sem áður bara flott skref fram á við. Það er alltaf verið að tala um það að við höndlum ekki umfjöllun en við fögnum henni bara og að það sé gert af virðingu. Við erum alltaf klárar í það.“
Sportið í dag er á dagskrá á Stöð 2 Sport alla virka daga klukkan 15.00. Upptökur af fyrri þáttum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Stöð 2 Sport er hluti af Sportpakkanum.