Innipúkinn stendur keikur eftir erfiðan vetur og færir sig í Gamla bíó Sylvía Hall skrifar 4. júní 2020 10:56 Innipúkinn verið athvarf þeirra sem vilja halda sig í bænum um verslunarmannahelgina undanfarin ár. Innipúkinn/Brynjar Snær
Forsvarsmenn Innipúkans hafa hafið undirbúning fyrir hátíðina í ár og er stefnan sett á að skemmta fólki á höfuðborgarsvæðinu um verslunarmannahelgina líkt og undanfarin ár. Þrátt fyrir ýmsar hindranir undanfarna mánuði sé staðan núna einfaldlega sú að þeir ætli að kýla á þetta. „Það er planið. Við vorum aðeins byrjaðir að hugsa um þetta áður en Covid skall á. Við erum búnir að vera að vinna þetta áfram. Eins og staðan er núna og miðað við hvernig ráðamenn hafa talað í fjölmiðlum að þá ætlum við bara að kýla á þetta. Það er ekki nema að það komi eitthvað bakslag eða það verði ekki losað meira fyrir núverandi samkomubann,“ segir Steinþór Helgi Arnsteinsson skipuleggjandi hátíðarinnar. Hann segir ákveðið stress hafa komið upp á tímabili, ekki einungis vegna kórónuveirufaraldursins heldur einnig vegna þess að margir samstarfsaðilar hátíðarinnar á síðasta ári eru ekki lengur starfandi. Til að mynda hafi Bryggjan Brugghús farið í gjaldþrot, en hana var að finna á Grandanum þar sem hátíðin fór fram á síðasta ári og var hún meðal annars nýtt til tónleikahalds á hátíðinni. Undirbúningur gengur vel að sögn skipuleggjanda.Innipúkinn/Brynjar Snær „Við þurftum að fara að teikniborðinu og leita að nýjum stað, sem við höfum alveg gert mikið hjá Innipúkanum,“ segir Steinþór og bætir við að hátíðin hafi í gegnum tíðina verið nokkurs konar flökkuhátíð í miðbænum. „Við höfum verið í Naustinni að vinna með Húrra og Gauknum á sínum tíma, við höfum verið í Iðnó og með Faktorý og svo framvegis.“ Færa sig í Gamla bíó í ár Í ár stendur til að halda hátíðina í Gamla bíó og nýta svo skemmtistaðinn Röntgen fyrir minni viðburði á hátíðinni, en Steinþór er einn eiganda Röntgen. Þannig sé hægt að dreifa mannfjöldanum. „Versta sviðsmyndin er ef núverandi samkomubann helst óbreytt, næst versta sviðsmyndin ef ef það verður aðeins leyfilegt að hafa fimm hundruð manns og opið til ellefu en þá getum við alveg sniðið okkur stakk eftir vexti því Gamla bíó er með rétt rúmlega fimmhundruð manna leyfi, við þyrftum bara að loka útisvæðið betur af. Svo er Röntgen með rúmlega hundrað manna leyfi.“ Sem skemmtistaðaeigandi og tónleikahaldari hefur Steinþór góða tilfinningu fyrir skemmtanalífi landsins. Hann segist finna fyrir því að fólk sé farið að langa að lyfta sér upp eftir kórónuveirufaraldurinn og það sé ekki einskorðað við Reykvíkinga. „Maður finnur fyrir því á landsbyggðinni og annars staðar að það er þorsti í fólki. Ég held að fólk kunni betur að meta menningu og lifandi viðburði á þessum tímum, það að sjá fólk performa og komast út á meðal fólks,“ segir Steinþór. Steinþór segir tónlistarviðburði og menningu vera enn mikilvægari nú þegar fólk hefur þurft að halda samkomum í algjöru lágmarki.Innipúkinn/Brynjar Snær Ætla áfram að vera „helsta tónlistarhátíð verslunarmannahelgarinnar“ Hann er því vongóður að stóra planið gangi upp og Innipúkinn verði að veruleika í ár. Nú þegar sé búið að bóka Gamla bíó og öll vinna miði að því að hátíðin fari fram. Þá hafi þeir haft samband við Reykjavíkurborg varðandi það að loka götunni fyrir utan bíóið svo stemningin geti verið sem allra best. „Við erum nú þegar búnir að bóka nokkrar hljómsveitir, sem ég ætla ekki alveg að tilkynna strax hverjar eru, en við ætlum okkur áfram að vera helsta tónlistarhátíð verslunarmannahelgarinnar.“ Hann vonar að ástandið verði liðið undir lok þegar verslunarmannahelgin gengur í garð og að kjöraðstæður verði fyrir skemmtanahald. Þangað til sé mikilvægt að fólk hugi að heilsunni og fari vel með sig. „Ég höfða til heilbrigðar skynsemi hjá fólki og vona að það hugsi vel um hvort annað.“
Samkomubann á Íslandi Tónlist Reykjavík Næturlíf Innipúkinn Mest lesið Brostnar væntingar á Frostrósum Gagnrýni „Að horfa upp á ofbeldi er jafn mikið ofbeldi og að verða fyrir því“ Lífið Netverjar koma „bomsum“ Ingu á Bessastöðum til varnar Lífið Frægir fundu ástina 2024 Lífið „Fyrstu jólin án hans og sætið hans verður tómt“ Lífið Kolféll fyrir Amsterdam og hollenskum strák Lífið Stjörnulífið: Bikiníjól og jól í Japan Lífið Límdi fyrir munninn á öllum við borðið Lífið Að velja rangan maka: „Við gerum oft svo lítið úr ástarmálunum“ Áskorun Dóttir Elínar Mettu og Sigurðar komin með nafn Lífið Fleiri fréttir Jói Pé og Króli skrifa söngleik Féll í myndlist en fann sig sem myndlistarmaður Bestu vinkonur sameinast í listinni Bjarni og Sigurður verði ekki myrtir í bók Borgarleikhúsið setur upp Moulin Rouge 250 sýningar af Elly: „Án hennar væri Íslandssagan öðruvísi“ Heitustu stjörnur listarinnar saman í Ásmundarsal Snorri skein skært í hátíðarbrókinni Engin sé uppskeran ef kartöflurnar eru ekki settar niður Verður ýmist í leyfi eða hlutastarfi á listamannalaunum Þessi fá listamannalaun 2025 Gleðilegir gestir í hátíðarskapi á safninu „Spurning um að fara að sækja réttu kokteilboðin“ Geir og Arnaldur í fangbrögðum á toppnum Í beinni: Dagur íslenskrar tónlistar Reykjavík samdi til þriggja ára við Borgarleikhúsið Bróðir Díönu Prinsessu naut sín í Reykjavík Leikstjóri Forrest Gump mættur til Reykjavíkur 52 ár á milli þeirra og þrjár bækur Ballettdansarinn Vladimir Shklyarov látinn Einar og Sigga á Grund gerð að heiðurslistamönnum Skaðlegt geðheilsunni að reyna að geðjast öðrum Leikfélag Hafnarfjarðar lagt niður Víkingur Heiðar tilnefndur til Grammy-verðlauna Frambjóðendur, sjónvarpsstjörnur og gamlir félagar fögnuðu með Geir Setja upp árekstur og hefja saman rekstur „Þetta eru mjög vondir samningar við Storytel“ Varpa ljósi á mikilvægi og gæði íslenskrar hönnunar „Við þurfum öll að halda í barnið innra með okkur“ Menningarritstjóri ráðinn framkvæmdastjóri Sjá meira