Man Utd vill ekki borga uppsett verð fyrir Sancho Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 1. júlí 2020 07:00 Man Utd vill ekki borga uppsett verð fyrir Englendinginn knáa. EPA-EFE/LARS BARON
Samkvæmt heimildum Sky Sports verður ekkert úr mögulegum kaupum Manchester United á enska vængmanninum Jadon Sancho. Man Utd vill einfaldlega ekki borga uppsett verð. Hinn tvítugi Sancho hefur verið frábær í liði Dortmund í ár sem og á síðasta tímabili. Hefur hann verið orðaður við Man Utd í töluverðan tíma en hann var í herbúðum nágranna þeirra í City áður en hann gekk í raðir Dortmund. Dortmund – sem borgaði átta milljónir punda – fyrir leikmanninn í ágúst 2017 vill fá allt upp að 100 milljónir punda fyrir hann í dag. Það eru rúmlega 17 milljarðar íslenskra króna. Samkvæmt Sky vilja forráðamenn Man Utd „aðeins“ 50 milljónir punda fyrir leikmanninn. Sökum kórónufaraldursins hefur verð leikmanna hríðfallið og telja forráðamenn enska félagsins verðlagningu leikmannsins út í hött. Þá á félagið enn eftir að leggja fram tilboð í vængmanninn sem hefur skorað 17 mörk og lagt upp önnur 16 á tímabilinu. Stefnir allt í að þetta verði sagan út sumarið en Man Utd er þekkt fyrir að eltast við leikmenn í langan tíma og borga svo á endanum uppsett verð þegar félagaskiptaglugginn er í þann mund að ljúka. Allavega síðan Ed Woodward fór að sjá um leikmannamál liðsins sumarið 2013. Sancho á aðeins tvö ár eftir af samningi sínum og því ljóst að ef Dortmund vill græða almennilega þá neyðist félagið til að selja leikmanninn í sumar.
Fótbolti Enski boltinn Þýski boltinn Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Fleiri fréttir Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjá meira