Með 573 þúsund krónur á mánuði að meðaltali Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 9. júlí 2020 09:58 Helmingur er með laun undir 473 þúsund og helmingur yfir. Vísir/Vilhelm
Heildartekjur einstaklinga á Íslandi voru um 6,9 milljónir króna að meðaltali árið 2019 eða að jafnaði 573 þúsund krónur á mánuði að því er fram kemur í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. Á vef Hagstofunnar segir að miðgildi heildartekna hafi verið um 5,6 milljónir króna á ári og var helmingur einstaklinga með heildartekjur undir 473 þúsund krónum á mánuði og helmingur yfir. Hækkun miðgildis á milli 2018 og 2019 var 0,9% sem er töluvert minni hækkun en síðustu ár. Þar segir jafnframt að við samanburð á meðaltekjum eftir aldurshópum sjáist að heildartekjur ársins 2019 voru langlægstar í aldurshópnum 16 til 24 ára eða um 231 þúsund krónur á mánuði. Í því samhengi sé rétt að benda á að þar sé um að ræða einstaklingstekjur og margir í þessum aldurshópi búi enn í foreldrahúsum. Þá voru heildartekjur hæstar fyrir aldurshópinn 55 til 74 ára eða að jafnaði 669 þúsund krónur á mánuði. Meðalheildartekjur 67 ára og eldri voru 517 þúsund krónur. Helmingur einstaklinga í þeim aldurshópi voru með um 410 þúsund krónur eða lægri heildartekjur á mánuði árið 2019. Talnaefnið sem gögnin byggja á koma úr skattframtölum einstaklinga sem eru skattskyldir hér á landi og skilað hafa framtali til ríkisskattstjóra.
Vinnumarkaður Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Fleiri fréttir Umdeildur sýnkudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Sjá meira