Konungur Sádi-Arabíu lagður inn á sjúkrahús Kjartan Kjartansson skrifar 20. júlí 2020 10:15 Salman konungur við opinbera athöfn í október. Hann er 84 ára gamall. Vísir/EPA
Salman bin Abdulaziz, konungur Sádi-Arabíu, var lagður inn á sjúkrahús í Ríad vegna bólgu í gallblöðru. Konungurinn, sem er 84 ára gamall, gengst nú undir rannsóknir, að sögn ríkisfréttastofu landsins. Heimsókn Mustafa al-Kadhimi, forsætisráðherra Íraks, til Sádi-Arabíu var frestað eftir fréttirnar af veikindum konungs, að sögn Reuters-fréttastofunnar. Salman hefur gegnt embætti konungs frá 2015 en hann var áður krónprins, varaforsætisráðherra og ríkisstjóri í Ríad. Næstur í valdaröðinni er Mohammed bin Salman krónprins sem stýrir konungsdæminu í reynd. Þrátt fyrir að hann hafi í upphafi vakið athygli fyrir ýmsar umbætur hefur verið gengið hart fram gegn andófsfólki í stjórnartíð hans. Þá vakti morðið á Jamal Khashoggi, sádi-arabískum blaðamanni og gagnrýnanda stjórnvalda í heimalandinu, í Istanbúl árið 2018 óhug um allan heim. Bandaríska leyniþjónustan telur líklegt að Salman krónprins hafi skipað fyrir um morðið.
Sádi-Arabía Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Erlent Fleiri fréttir Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Sjá meira