Udinese hélt lífi í toppbaráttunni með sigri á Juventus

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Udinese vann endurkomu sigur á Ítalíumeisturum Juventus á útivelli í dag. Héldu þeir þannig lífi í toppbaráttunni á Ítalíu.
Udinese vann endurkomu sigur á Ítalíumeisturum Juventus á útivelli í dag. Héldu þeir þannig lífi í toppbaráttunni á Ítalíu. Alessandro Sabattini/Getty Images

Udinese vann óvænta 2-1 sigur á áttföldum Ítalíumeisturum Juventus í dag. Þar með halda þeir toppbaráttunni þar í landi á lífi en Juventus hefði svo gott sem unnið níunda titilinn í röð með sigri. 

Matthijs De Ligt kom Juventus yfir með frábæru marki á 42. mínútu og voru meistararnir 1-0 yfir í hálfleik. Í þeim síðari jafnaði Ilija Nestorovksi með frábæru skallamarki á 52. mínútu og það var svo í uppbótartíma sem Seko Fofano tryggði Udinese mjög óvæntan 2-1 sigur.

Þar með fór kampavínið aftur í kælinn hjá Juventus en liðið er samt sem áður með níu fingur á titlinum. Liðið er með sex stiga forystu á Atalanta þegar þrjár umferðir eru eftir af deildinni. 

Udinese er á sama tíma í 15. sæti með 39 stig, stjö stigum frá fallsæti.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira