Meistaradeildarmartröð Börsunga náði hámarki í gærkvöld Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 15. ágúst 2020 15:00 Leikurinn í gær bætist ofan á martraðir Messi gegn Roma og Liverpool undanfarin tvö ár. Vísir/Getty/EPA
Spænska stórveldið Barcelona mátti þola 8-2 tap gegn Bayern Munich í Meistaradeild Evrópu í gærkvöld. Er þetta þriðja árið í röð þar sem Börsungar falla úr leik á sársaukafullan hátt. Ef til vill er það Barcelona-lið sem við öll þekkjum komið á endastöð. Allavega ef marka má leikinn í gær. Eftir 4-1 sigur á Roma á Nou Camp – hinum magnaða heimavelli sínum – þá virtust Börsungar búnir að bóka farmiða sinn í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu vorið 2018. Rómverjar virtust þó ekki hafa fengið minnisblaðið, mögulega var það einfaldlega á spænsku. Lokatölur í Róm voru 3-0 heimamönnum í vil og fór Roma fór því í undanúrslit þökk sé útivallamarkareglunni. Messi sjálfur mætti í viðtal áður en næsta tímabil hófst og sagði að þetta myndi ekki gerast aftur. Liðið hefði lært sína lexíu og myndu ekki falla úr keppni á slíkan hátt aftur. Félagið þyrfti og ætti að gera betur. Ári síðar flugu Börsungar inn í undanúrslitin og aftur unnu þeir 3-0 á heimavelli. Að þessu sinni var það Liverpool sem lá í valnum. Það virtist sem Messi ætlaði að uppfylla loforð sitt en lærisveinar Jurgen Klopp eru lítið fyrir það að leggja árar í bát. Leikmenn Liverpool léku ef til vill sinn besta leik á mögnuðu tímabili er liðin mættust á Anfield. Á sama tíma voru Börsungar andlausir og hreint út sagt skelfilegir frá A til Ö. Liverpool var 3-0 yfir og stefndi í framlengingu þegar þeir unnu hornspyrnu undir lo leiks. Hægri bakvörðurinn Trent Alexander-Arnold tók spyrnuna fljótt, Börsungar sofnuðu á verðinum og Divock Origi skráði sig í sögubækur Liverpool-borgar. Lokatölur 4-0 og annað árið í röð datt Barcelona út eftir að hafa beðið afhroð á útivelli. Undanfarin tvö tímabil gátu Börsungar hins vegar huggað sig við það að þeir lönduðu spænska meistaratitlinum. Eitthvað sem þeir gerðu ekki í ár. Ernesto Valvarde var sagt upp störfum er liðið sat á toppi deildarinnar. Í hans stað kom Quique Setien og síðan þá hefur allt legið niður á við hjá Messi og félögum. Liðið gaf Real Madrid titilinn á silfurfati og síðan beið þeirra afhroð allra afhroða gegn Bayern í Meistaradeildinni. Vegna kórónufaraldursins var aðeins einn leikur í stað tveggja. Fór hann fram í Lisbon í Portúgal þar sem Meistaradeildinni mun ljúka þann 23. ágúst. Það er erfitt að útskýra leik gærdagsins. Bæjarar nýttu sér alla veikleika Börsunga og hefðu eflaust átt að skora enn fleiri mörk. Það sem verra er að mörgum leikmönnum Börsunga virtist allt að nær sama hvað var að gerast á vellinum. Rúsínan í pylsuendanum fyrir Bæjara var svo frammistaða varamannsins Philippe Coutinho en hann er á láni hjá félaginu frá Barcelona. Hann skoraði tvívegis ásamt því að leggja eitt upp í ótrúlegum 8-2 sigri Bayern. Gullaldartímabil Börsunga virðist svo sannarlega lokið. Þó svo að liðið hafi beðið afhroð undanfarin tvö ár þá verður þetta seint toppað. Hvað tekur við er hins vegar óvíst. Messi er að komast á aldur, Setien virðist engan veginn ná til leikmanna liðsins, Suarez virðist á förum og lykilmenn á borð við Sergio Busquets og Gerard Pique eru orðnir gamlir. Þá hafa leikmannakaup liðsins engan veginn gengið upp undanfarin ár. Hvort Börsungar verða yfir höfuð í baráttu um titilinn á komandi árum verður einfaldlega að koma í ljós en eins og skáldið sagði þá er alltaf dimmast rétt fyrir dögun.
Fótbolti Spænski boltinn Meistaradeild Evrópu Tengdar fréttir Muller segir yfirburði Bayern í gær meiri en Þýskalands yfir Brasilíu Thomas Muller, leikmaður Bayern, var einnig í liði Þýskalands sem sigraði Brasilíu 7-1 í undanúrslitum HM 2014 í Brasilíu. 15. ágúst 2020 12:00 Fyrsta sinn í fjórtán ár sem hvorki Ronaldo né Messi taka þátt í undanúrslitum Meistaradeildarinnar Cristiano Ronaldo og Lionel Messi hafa átt sviðsljósið í evrópskum fótbolta í meira en áratug. Í gær féll Barcelona úr leik í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu á skammarlegan hátt þegar liðið lenti í hakkavél Bayern Munchen og tapaði 2-8, sem var versta tap Börsunga í 74 ár. 15. ágúst 2020 10:45 „Þetta er til skammar fyrir Barcelona“ Freyr Alexandersson átti vart orð yfir frammistöðu Barcelona gegn Bayern München í Meistaradeild Evrópu. 15. ágúst 2020 07:00 Sjáðu mörkin þegar Bayern tók Barcelona í karphúsið Bayern München tók Barcelona í kennslustund í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld og vann 2-8 sigur. 14. ágúst 2020 22:15 Pique gráti næst eftir tapið fyrir Bayern: „Botninum er náð“ Gerard Pique var í öngum sínum eftir að Barcelona tapaði 2-8 fyrir Bayern München í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. 14. ágúst 2020 21:20 Bæjarar niðurlægðu Börsunga Bayern München er komið í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu eftir stórsigur á Barcelona, 2-8. 14. ágúst 2020 20:51 Mest lesið Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Fótbolti Bætti vallarmetið og kom sér upp í annað sætið Golf Björgvin Karl í fjórða sæti heimsleikanna Sport Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Fótbolti Guðmundur Oddsson látinn Golf Æfir íslenskuna daglega í klefanum Íslenski boltinn Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar Íslenski boltinn Sinner og Djokovic þurfa að draga sig úr keppni Sport Hættir með landsliðinu Fótbolti Dagskráin í dag: Tímataka og gamlingjagolf Sport Fleiri fréttir Varane bannar ungum leikmönnum að skalla Sjáðu markaveislu gærdagsins í Víkinni Þjálfari heimsmeistaranna segir hegðun Argentínu óþolandi og óásættanlega Æfir íslenskuna daglega í klefanum Myndaveisla frá endurkomu Söru Bjarkar „Virkilega sáttur við framlag leikmannanna“ „Bárum of mikla virðingu fyrir þeim“ Uppgjörið: Víkingur R. - Keflavík 5-1 | Engin Evrópuþynnka í Víkingum „Búin að slá út ansi öflug lið“ Taugarnar þandar í endurkomusigri Njarðvíkur Tap í fyrsta leik Söru Bjarkar fyrir Hauka síðan 2008 Uppgjörið: Þróttur - ÍBV 1-0 | Þróttarar í bikarúrslit Hetja Þróttar: „Ákvað að hoppa og vona það besta“ Elfar Árni tryggði Völsungum mikilvægan sigur á Mærudögum United skoraði fimm gegn strákunum hans Freys Afturelding kaupir Kristin Frey frá Val Garnacho vonast til að endurheimta sjálfstraust sitt hjá Villa Van Bommel tekur við Belgíu Entist skammt í þjálfarastólnum Völler fer og Arsenal-hetja starfar með Klopp „Nýtt verkefni og nýr leikur“ Fimmtán ára strákur í hópi Manchester United í kvöld Töluðu við Ancelotti áður en þeir reyndu við Guardiola Klopp kynntur sem nýr landsliðsþjálfari Þýskalands Chelsea að hreppa Lacroix Myndband með afa heimsmeistarans bræddi hjörtu HM-leikmaður í glannaakstri með kókaín í blóðinu Hættir með landsliðinu María lýsir erfiðri meðgöngu: „Þekki mig ekki í eigin líkama“ Skaut á United í fyrsta viðtalinu sem leikmaður City: „Kóngarnir í Manchester“ Sjá meira
Muller segir yfirburði Bayern í gær meiri en Þýskalands yfir Brasilíu Thomas Muller, leikmaður Bayern, var einnig í liði Þýskalands sem sigraði Brasilíu 7-1 í undanúrslitum HM 2014 í Brasilíu. 15. ágúst 2020 12:00
Fyrsta sinn í fjórtán ár sem hvorki Ronaldo né Messi taka þátt í undanúrslitum Meistaradeildarinnar Cristiano Ronaldo og Lionel Messi hafa átt sviðsljósið í evrópskum fótbolta í meira en áratug. Í gær féll Barcelona úr leik í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu á skammarlegan hátt þegar liðið lenti í hakkavél Bayern Munchen og tapaði 2-8, sem var versta tap Börsunga í 74 ár. 15. ágúst 2020 10:45
„Þetta er til skammar fyrir Barcelona“ Freyr Alexandersson átti vart orð yfir frammistöðu Barcelona gegn Bayern München í Meistaradeild Evrópu. 15. ágúst 2020 07:00
Sjáðu mörkin þegar Bayern tók Barcelona í karphúsið Bayern München tók Barcelona í kennslustund í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld og vann 2-8 sigur. 14. ágúst 2020 22:15
Pique gráti næst eftir tapið fyrir Bayern: „Botninum er náð“ Gerard Pique var í öngum sínum eftir að Barcelona tapaði 2-8 fyrir Bayern München í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld. 14. ágúst 2020 21:20
Bæjarar niðurlægðu Börsunga Bayern München er komið í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu eftir stórsigur á Barcelona, 2-8. 14. ágúst 2020 20:51