Fótbolti

Elías svaraði fréttum vikunnar með tveimur mörkum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Elías Már Ómarsson fagnar marki í kvöld.
Elías Már Ómarsson fagnar marki í kvöld. vísir/getty

Elías Már Ómarsson skoraði tvö mörk er Excelsior vann 4-1 sigur á Helmond Sport í hollensku B-deildinni í knattspyrnu í kvöld.

Elías komst í fréttirnar í vikunni er hann var umfjöllunarefni sænskra miðla en hann var talinn skulda fimm milljónir í skatt. Það ku hafa verið vegna þess að hann gleymdi að skila skattskýrslu.

Staðan var 1-0 á 70. mínútu þegar Elías Már skoraði fyrra mark sitt og tveimur mínútum síðar skoraði Keflvíkingurinn annað mark sitt og þriðja mark Excelsior.





Excelsior er í 7. sæti hollenska boltans með 40 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×