Bandaríska dómsmálaráðuneytið gaf út ákærur á hendur fjórum liðsmönnum kínverska hersins vegna innbrots í tölvukerfi lánshæfisfyrirtækisins Equifax árið 2017. Persónuupplýsingum um nærri því helming bandarísku þjóðarinnar var stolið í innbrotinu.
Þjófarnir komust meðal annars yfir kennitölu og fæðingardegi um 145 milljóna Bandaríkjamanna í innbrotinu auk viðskiptaleyndarmála Equifax. Fyrirtækið féllst á að greiða Viðskiptastofnun Bandaríkjanna (FTC) 700 milljónir dollara, jafnvirði um 89 milljarða íslenskra króna, til að bæta viðskiptavinum þess tjónið í fyrra.
Ákæran sem var gefin út í dag er í níu liðum og snýr að stuldi á persónuupplýsingum og viðskiptaleyndarmálum. William Barr, dómsmálaráðherrann, sagði innbrotið „vísvítandi og víðtæka innrás í persónuupplýsingar bandarísku þjóðarinnar“, að því er segir í frétt Washington Post.
Í ákærunni kemur fram að kínversku tölvuþrjótarnir hafi nýtt sér veikleika í tölvukerfi Equifax sem fyrirtækið hafði ekki látið laga þrátt fyrir því hafi verið gert viðvart um gallann. Komust hakkararnir þannig yfir gríðarlegt magn persónuupplýsinga.
Kínverjarnir eru sagðir hafa reynt að fela slóð sína með því að beina netumferð í gegnum 34 netþjóna í tuttugu löndum. Þeir hafi jafnframt notað dulkóðaðar samskiptarásir og eytt skrám til að má út spor sín.
Litlar líkur er á því að fjórmenningarnir komi nokkurn tímann fyrir bandarískan dómstól. Ferðist þeir einhvern tímann til Bandaríkjanna gætu þeir þó átt á hættu að vera handteknir.
Grunnt hefur verið á því góða á milli bandarískra og kínverskra stjórnvalda undanfarin misseri. Þau hafa staðið í viðskiptastríði og skellt innflutningstollum á vörur hvorra annarra. Barr varaði jafnframt við því í síðustu viku ríki heims við því að taka við 5G-tækni frá Kína því þá ættu þau á hættu að „leggja efnahagsleg örlög sín í hendur Kína“.