Ferðalangar fylgist vel með veðurspám Vésteinn Örn Pétursson skrifar 29. febrúar 2020 09:49 Fólki er bent á að fylgjast vel með verðuspám, hyggi það á ferðalög. Vísir/Vilhelm
Djúp lægð vestur af Írlandi veitir raka og hvassri austanátt yfir landið en vegna þess hve kalt loft er í kringum landið myndast litlar lægðabólur úti á hafi og stjórna vindáttum og úrkomu á landinu. Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands. Á austanverðu landinu heldur áfram að snjóa fram undir hádegi, en þokkalegasta veður verður vestan til. Síðdegis gengur síðan snjókomubakki frá austri til vesturs yfir landið. Samhliða bakkanum hvessir hratt af austri. Gera má ráð fyrir hvassviðri eða stormi og skafrenningi syðst og suðaustanlands í kvöld og nótt, og víðar um landið á morgun. Athygli er vakin á því að skipulag ferðalaga getur auðveldlega farið úr skorðum við aðstæður sem þessar og ferðalöngum því bent á að fylgjast grannt með viðvörunum og veðurspám. Veðurhorfur á landinu næstu daga, samkvæmt Veðurstofu Íslands:Mánudagur:Austan 8-18 m/s, hvassast við S-ströndina. Bjart með köflum N- og V-lands, en él á SA- og A-landi. Hiti kringum frostmark en vægt frost inn til landsins.Þriðjudagur:Austan 8-15 A-til, annars hægari. Slydda eða snjókoma með köflum, hiti breytist lítið.Miðvikudagur:Suðlæg átt og léttir til N-lands. Annars dálítil él og líklega snjókoma um tíma á Vestfjörðum. Frost 0 til 8 stig, kaldast norðan heiða.Fimmtudagur:Norðaustanátt, skýjað með köflum og él N-til á landinu. Frost 0 til 8 stig. Á föstudag: Norðanátt og él, en léttskýjað sunnan heiða.
Veður Mest lesið Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður „Ég elska Obbu“ Innlent Fleiri fréttir Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Sjá meira