Burnley og Tottenham skildu jöfn á Turf Moor Arnar Geir Halldórsson skrifar 7. mars 2020 19:30 Af Turf Moor í dag vísir/getty Síðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni lauk nú rétt í þessu þar sem Burnley fékk Tottenham í heimsókn á Turf Moor leikvanginn. Það blés ekki byrlega fyrir lærisveina Jose Mourinho því Chris Wood kom heimamönnum yfir af harðfylgi strax á 13.mínútu. Heimamenn höfðu forystu í leikhléi og greip Mourinho til þess að gera tvær breytingar á liði sínu í hálfleik. Það skilaði sér strax því Tottenham jafnaði metin á 51.mínútu. Markið kom af vítapunktinum þar sem Dele Alli var öryggið uppmálað. Fleiri urðu mörkin ekki og 1-1 jafntefli niðurstaðan. Enski boltinn