Allt of margir á einum skemmtistað og erill hjá lögreglu Samúel Karl Ólason skrifar 22. ágúst 2020 07:18 Einn aðili var handtekinn fyrir líkamsárás og heimilisofbeldi í Hafnarfirði og annar í Mosfellsbæ. Báðir voru látnir gista fangaklefa í nótt. Vísir/Vilhelm
Töluverður erill var hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt. Rúmlega hundrað mál voru skráð í dagbók lögreglu frá fimm í gær til fimm í morgun. Lögregluþjónar vitjuðu alls tólf skemmtistaða í gær, eins og hefur verið gert að undanförnu, vegna eftirlits með sóttvörnum. Af þeim var allt til fyrirmyndar á níu stöðum. Samkvæmt dagbók lögreglu var starfsmönnum tveggja staða gert að gera úrbætur á sætaskipan, þar sem tveggja metra reglan var ekki virt. Á einum stað höfðu starfsmenn þó misst tök á mannfjölda og var þeim gert að bæta úr því tafarlaust. Nokkrir ökumenn voru stöðvaðir fyrir ölvunar og/eða fíkniefnaakstur og sömuleiðis var nokkuð um að kvartað var vegna hávaða í heimahúsum. Einn aðili var handtekinn fyrir líkamsárás og heimilisofbeldi í Hafnarfirði og annar í Mosfellsbæ. Báðir voru látnir gista fangaklefa í nótt. Lögreglan fékk einnig tilkynningu um að tveir menn hefðu ráðist á einn í miðbænum. Sá sem fyrir árásinni varð var lítils háttar meiddur en árásarmennirnir voru farnir þegar lögregluþjóna bar að garði. Einnig var brotist inn í fyrirtæki í hverfi 104 og í öðru máli voru afskipti höfð af konu sem stal úr verslun.
Lögreglumál Reykjavík Samkomubann á Íslandi Mest lesið „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Sjá meira