Trampólín og tré lentu á bílum Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 31. ágúst 2020 06:20 Gul veðurviðvörun var í gildi á höfuðborgarsvæðinu og víðar í gærkvöldi og nótt. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm
Eitthvað var um tjón á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi vegna veðurs ef marka má dagbók lögreglu þennan morguninn. Gul veðurviðvörun í gildi á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt vegna hvassviðris og rigningu og voru íbúar beðnir um að huga að lausamunum. Að því er segir í dagbók lögreglu var upp úr klukkan 20 tilkynnt um fjúkandi þakplötur frá nýbyggingu . Var haft samband við verktaka sem ætlaði að gera ráðstafanir. Upp úr klukkan 22 var tilkynnt um girðingu sem væri að fjúka við nýbyggingu í Kópavogi. Skömmu fyrir klukkan 23 var svo tilkynnt um brotið tré sem hafði hafnað á bifreið í austurborginni og lokað götunni. Segir í dagbók lögreglu að eigandi bílsins hafi ætlað að gera ráðstafanir vegna málsins og opna fyrir umferð. Um sviptað leyti var tilkynnt um fjúkandi trampólín í Hafnarfirði sem einnig hafði lent á bíl. Á meðal annars sem greint er frá í dagbók lögreglu er umferðaróhapp sem varð á Breiðholtsbraut laust fyrir klukkan 18 í gærkvöldi. Bíl var ekið á ljósastaur og sagði vitni að ökumaðurinn og farþegi hafi hlaupið af vettvangi. Parið var handtekið skömmu síðar og reyndist ökumaðurinn vera 16 ára stúlka sem hefur aldrei öðlast ökuréttindi. Farþeginn er 18 ára. Var málið afgreitt með aðkomu forráðamanns og tilkynningu til Barnaverndar.
Veður Lögreglumál Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Erlent Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Innlent Sundhnúksgígaröðin að verða búin Innlent Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Innlent Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Innlent Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Innlent Vargöldin á Haítí versnar hratt Erlent „Þetta var mjög skrýtin stemning“ Erlent Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Innlent Fleiri fréttir Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Biskup fagnar hækkun sóknargjalda Sundhnúksgígaröðin að verða búin Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Breyting á eldgosinu og stór dagur í Karphúsinu Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Minni virkni í miðgígnum Vextir og kosningar í Sprengisandi Réttindalausir stútar á ferðinni Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Ók á ljósastaur við Grensásveg Eldur kviknaði í bíl í Mosfellsbæ Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt til niðurskurð á hverju ári Hefur gefið Landgræðslunni 26 milljónir króna í formi fræja Mikilvægt að Bláa lónið geti opnað sem fyrst Hvetja íbúa Suðurnesja til að spara heita vatnið Varnaraðgerðir í Svartsengi og umdeild yfirhalning hjá Jaguar Ísland virðir handtökuskipan á hendur Netanjahú Fjölmiðlabann í kjaradeilu kennara Hildur hnýtir í Sigurð og sakar hann um ýkjur Straumar valda álagi á varnargarða og staðan viðkvæm Byggt og byggt á Suðurlandi og það þarf að byggja enn meira KÍ segir ummæli Ingu Rúnar „rannsóknarefni“ „Við gerum aldrei neitt nema með fullu samþykki“ Bein útsending: Hvar eru umhverfis- og loftslagsmálin í kosningabaráttunni? Kennarasambandið sýni kennurum „alvarlega lítilsvirðingu“ Sjá meira