„Féllu nokkur hamingjutár þegar Sara skoraði“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. september 2020 16:30 Berglind Björg Þorvaldsdóttir og Sara Björk Gunnarsdóttir fagna góðum sigri með íslenska landsliðinu. vísir/vilhelm
Berglind Björg Þorvaldsdóttir og Sara Björk Gunnarsdóttir munu báðar leika í frönsku úrvalsdeildinni á næsta tímabili. Berglind er við það að ganga í raðir nýliða Le Havre en Sara leikur með Lyon sem hefur unnið frönsku deildina fjórtán ár í röð. Sem kunnugt er varð Lyon Evrópumeistari fimmta árið í röð á sunnudaginn þegar liðið sigraði Wolfsburg í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu, 3-1. Sara skoraði þriðja mark Lyon og gulltryggði sigur liðsins. Hún er fyrsta íslenska fótboltakonan sem verður Evrópumeistari. Berglindi og Söru er vel til vina og hún segist hafa glaðst með landsliðsfyrirliðanum þegar hún náði þessum merka áfanga á sunnudaginn. „Ég fæ bara gæsahúð þegar ég hugsa um þetta núna. Þegar ég sá hana skora féllu nokkur hamingjutár,“ sagði Berglind. „Ég er ótrúlega stolt af henni, samgleðst henni og ef einhver á þetta skilið er það hún. Hún hefur lagt fáránlega hart að sér til að ná þessu markmiði,“ bætti Berglind við. Hún fer út til Frakklands á fimmtudaginn og gengst undir læknisskoðun hjá Le Havre á laugardaginn.
Franski boltinn Meistaradeild Evrópu í fótbolta kvenna Mest lesið Mögulega leikþáttur hjá Egyptum Handbolti Tók brjálæðiskast í klefanum hjá Man. Utd Enski boltinn Sjáðu stemninguna hjá stórum hópi Íslendinga í Zagreb Handbolti Hefur ekki mikla trú á CrossFit goðsögnunum frá Íslandi Sport Í beinni: Egyptaland - Ísland | Stórleikur í Zagreb Handbolti Svona var Pallborðið: Handboltaæði runnið á þjóðina Handbolti HM í dag: Meiðsli í miðjum þætti og heyrnartólin lentu upp í sveit Handbolti „Ég er ekkert viss um að við náum aftur þessari geðveiki“ Handbolti Þjóðverjar í sárum eftir „Herning helvítið“ Handbolti Orri Freyr er Orri óstöðvandi Handbolti Fleiri fréttir Landsliðsþjálfarinn Arnar var í stúkunni þegar Hákon mætti á Anfield Cole Palmer er stolt lítillar þjóðar í Karabíska hafinu „Held ég hafi þurft á því að halda“ Ætlar að taka annað fótboltasumar á „besta staðnum á Íslandi“ Mannvirkjasjóður KSÍ fer næstu árin í uppbyggingu á Laugardalsvelli Sjáðu markaveislu Barcelona, Hákon búa til mark á Anfield og öll hin mörkin í gær Dortmund rak þjálfarann sinn eftir tapið í gær Slagsmál í leikmannagöngunum eftir sigur Barcelona í gær Táningur handtekinn vegna ummæla í garð Havertz og eiginkonu hans Tók brjálæðiskast í klefanum hjá Man. Utd Chelsea að gera Naomi Girma að dýrasta leikmanni sögunnar Magnaður endurkomusigur Atlético Madríd Jón Daði skoraði í fyrsta sigurleik Burton á árinu Monaco með mikilvægan sigur á Aston Villa Ótrúleg endurkoma Börsunga Torsóttur sigur toppliðsins Grealish eftirsóttur: Færir hann sig um set í Manchester? KSÍ boðar unga varnarmenn á séræfingar Hefur skoðanir á því hvar Arnar eigi að hefjast handa með landsliðið Víkingur spilar heimaleik sinn í Helsinki Telma mætt til skosks stórveldis Meistarar City halda áfram að bæta við sig „Of snemmt að kalla Liverpool besta lið í heimi“ Spilar ekki á meðan glugginn er opinn Petit baðst afsökunar á að „drepa“ Pat Rice „Ég myndi deyja fyrir Liverpool“ Ósáttur afi Sölva skildi ekki hvernig Arnar gat rekið hann í beinni Óvænt rekinn með símtali rétt áður en Elísabet tók við Forseta FIFA boðið á innsetningu Donald Trump Solskjær: Lét mig vinna launalaust Sjá meira