Suárez sakaður um að hafa svindlað á ítölskuprófi Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. september 2020 11:14 Luis Suárez hefur að öllum líkindum leikið sinn síðasta leik fyrir Barcelona. Hver næsti áfangastaður hans á ferlinum verður er enn óljóst. getty/David Ramos
Ítalskir fjölmiðlar greina frá því að lögreglan þar í landi rannsaki nú ásakanir á hendur Luis Suárez um að hann hafi svindlað á prófi til flýta fyrir félagaskiptum sínum til Juventus. Suárez fór til Perugia á Ítalíu í síðustu viku og tók ítölskupróf til að fá ítalskt ríkisfang sem átti að hjálpa honum að komast til Juventus. Suárez náði prófinu en svo virðist sem brögð hafi verið í tafli. Greint hefur verið frá því að Suárez hafi vitað öll svörin fyrirfram og því náð prófinu þrátt fyrir að kunna ekkert í ítölsku. „Hann talar ekki stakt orð í ítölsku. Ef blaðamenn myndu spyrja hann spurninga væri hann úti á túni. Hann þénar tíu milljónir evra á ári. Hann þarf að standast þetta próf,“ hefur Repubblica eftir ónefndum embættismanni. Málið er til rannsóknar hjá ítölsku lögreglunni og ef Suárez verður fundinn sekur á hann von á þungri refsingu. Félagaskipti Úrúgvæans til Juventus duttu upp fyrir og félagið er nú nálægt því að ganga frá kaupunum á Álvaro Morata frá Atlético Madrid. Suárez gæti tekið stöðu Moratas hjá Atlético Madrid, að því gefnu að Barcelona leyfi honum að fara þangað. Spænskir fjölmiðlar greina frá því að Atlético Madrid sé eitt þeirra félaga sem Suárez megi ekki fara til þegar Barcelona riftir samningi hans.
Ítalski boltinn Mest lesið Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sport Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Íslenski boltinn Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Fleiri fréttir Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Loksins sigur hjá Tottenham Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl „Hann kvartar yfir öllu“ Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Orri Steinn skoraði í miklum markaleik Karólína skoraði og fullkomin byrjun Inter heldur áfram Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flug Freys heldur áfram: „Þetta er alveg ótrúlega ljúft“ Siggi Raggi einu stigi frá titlinum Tómas gat ekki stöðvað niðurlægingu Hearts Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Sjá meira