Arnór á markaskónum og CSKA heldur í við toppliðið Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 26. október 2020 18:01 Arnór Sigurðsson var á skotskónum í dag. Gavriil Grigorov/Getty Images
CSKA Moskva vann þægilegan 5-1 sigur á Arsenal Tula á heimavelli í rússnesku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Hörður Björgvin Magnússon var á sínum stað í vörn CSKA. Hinn 21 árs gamli Arnór Sigurðsson hóf leikinn á bekknum líkt og undanfarið. Eftir rólegan fyrri hálfleik kom Fedor Chalov heimamönnum yfir undir blálokin með marki úr vítaspyrnu. Nikola Vlašić skoraði annað og þriðja mark CSKA Moskvu snemma í síðari hálfleik og sigurinn því nánast í höfn þegar rúmur hálftími var til leiksloka. Gestirnir minnkuðu muninn á 78. mínútu og í kjölfarið kom Arnór inn af varamannabekknum. Það tók hann aðeins sjö mínútur að koma knettinum í netið og staðan orðin 4-1 CSKA í vil Ivan Oblyakov bætti við fimmta marki heimamanna áður en flautað var til leiksloka og lokatölur því 5-1 CSKA í vil. Hinn 27 ára gamli Hörður Björgvin lék allan leikinn í miðverði. Sigurinn þýðir að CSKA er nú aðeins tveimur stigum á eftir toppliði Spartak – einnig frá Moskvu – þegar 12 umferðum er lokið í rússnesku úrvalsdeildinni. Var þetta fjórði sigur CSKA í síðustu fimm leikjum.
Fótbolti Rússneski boltinn Mest lesið Ótrúleg endurkoma Feyenoord í Manchester Fótbolti Spiluðu deildina hundrað þúsund sinnum og reiknuðu sigurlíkur liðanna Handbolti „Við erum brothættir“ Fótbolti Tvær tvöfaldar þrennur í sigrum Tindastóls og Þórs Akureyrar Körfubolti Lewandowski sá þriðji til að skora hundrað Meistaradeildarmörk Fótbolti „Höfum sýnt að þetta er getustigið sem við getum spilað á“ Fótbolti Uppgjörið: FH - Fenix Toulouse 25-29 | Tap í síðasta Evrópuleik FH-inga Handbolti Porto lagði Val í Portúgal Handbolti „Þessi deild er bara þannig að það er ekkert gefins“ Körfubolti „Nauðsynlegt fyrir íslensk lið að taka þátt í svona keppni“ Sport Fleiri fréttir „Við erum brothættir“ „Höfum sýnt að þetta er getustigið sem við getum spilað á“ Lewandowski sá þriðji til að skora hundrað Meistaradeildarmörk Atlético skoraði sex Ótrúleg endurkoma Feyenoord í Manchester Skytturnar léku á als oddi Eiður Aron áfram á Ísafirði Hareide þarf að leggjast undir hnífinn Liverpool væri bara í þrettánda sæti án markanna hans Mo Salah Andri Rúnar í Stjörnuna Hvorki Arnar né Freyr heyrt frá KSÍ Kæra framleiðendur Lionel Messi drykkjarins fyrir stuld Arnar betur í stakk búinn en Eyjólfur og Arnar Þór Aðeins Heimir og Lagerbäck með betri árangur á öldinni „Fann brosið mitt á ný“ Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn Hareide segir að þjálfaraferlinum sé lokið Carragher segir Salah vera eigingjarnan Segir fótboltamönnum að halda sig frá McGregor Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Elías Rafn hélt hreinu þegar meistararnir jöfnuðu toppliðið að stigum Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Kveðst frekar vilja íslenskan þjálfara Hamrarnir unnu óvæntan sigur í norðrinu Þríeykið rennur allt út á samning næsta sumar Potter orðaður við Leicester á nýjan leik Hareide hugsaði um heilsuna: „Vildi einbeita sér að því“ Hareide hættur með landsliðið Grindvíkingar þétta raðirnar Sjá meira