Allt starfsfólk í úrvinnslusóttkví tveimur dögum eftir opnun Kristín Ólafsdóttir skrifar 28. október 2020 12:27 Sjávarhornið er til húsa að Bergstaðastræti 14. Sjávarhornið
Allt starfsfólk fiskverslunarinnar Sjávarhornsins við Bergstaðastræti hefur verið sett í úrvinnslusóttkví. Verslunin opnaði á mánudag og hafði því aðeins verið starfrækt í tvo daga áður en til sóttkvíarinnar kom. Frá þessu greinir verslunin sjálf á Facebook-síðu sinni í dag. Þar segir að kórónuveirusmit hafi komið upp hjá einhverjum tengdum starfsfólki og nú fyrir skömmu hafi þær upplýsingar borist að starfsmenn þurfi að fara í úrvinnslusóttkví. „Við viljum leggja áherslu á það að snertifletir hafa ávallt verið sótthreinsaðir, allt okkar starfsfólk með hanska og við vandað okkur eftir fremsta megni. Við lifum á sérstökum tímum og því geta hlutir sem þessir komið upp á,“ segir í færslu verslunarinnar. Þess er þó ekki getið hversu marga starfsmenn er um að ræða. „Við tökum enga sénsa, það er bara þannig og sendum því allt okkar starfsfólk heim þangað til að smitrakningarteymið hefur lokið sínum störfum. Við látum ykkur vita um leið og okkur er óhætt að opna aftur svo það sé pottþétt að engin sé útsetur fyrir smiti.“ Líkt og áður segir hóf Sjávarhornið rekstur á mánudag og því hafði verslunin aðeins staðið opin í tvo daga áður en þurfti að loka aftur vegna sóttkvíar. Verslunin er til húsa að Bergstaðastræti 14, þar sem verslunin Kjöt og fiskur var áður.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Reykjavík Verslun Mest lesið „Svarið er einfaldlega: Svona höfum við alltaf gert þetta“ Atvinnulíf Bónus ódýrari en Prís í fjögur skipti af fimm hundruð Neytendur MrBeast gerir tilboð í TikTok Viðskipti erlent Ölgerðin kaupir Gæðabakstur Viðskipti innlent Nýtt 68 herbergja hótel byggt á Hvolsvelli Viðskipti innlent Taka jákvætt í kolefnisförgunarstöð í Ölfusi Viðskipti innlent Íslandsbanki og VÍS skrifa undir samstarfssamning Neytendur Kaffi Kjós til sölu Viðskipti innlent Segir skipta gríðarlegu máli að fá loðnuvertíð Viðskipti innlent „Oft velt því fyrir mér: Hvenær munu þessar sögusagnir hætta?“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýtt 68 herbergja hótel byggt á Hvolsvelli Taka jákvætt í kolefnisförgunarstöð í Ölfusi Ölgerðin kaupir Gæðabakstur Segir skipta gríðarlegu máli að fá loðnuvertíð Kaffi Kjós til sölu Skóari skellir í lás á Grettisgötunni Brotið á Jóhannesi en Birkir fer tómhentur frá Strassborg Karen inn fyrir Þórarin Björn Leifsson horfir til Vestmannaeyja Yfirtakan hækkaði gengi krónunnar töluvert Afkoma Arion lengst yfir spám greinenda Þögul sem gröfin um auglýsinguna umdeildu Eftirlitið gefur lítið fyrir yfirlýsingu Styrkáss Erla Ósk ráðin forstöðumaður EMBA náms við HR Fjögur skip hefja leit að loðnu Segir seinkun Hvammsvirkjunar geta þýtt tugmilljarða tekjutap Svigrúm fyrir keppinauta „sem ástunda ekki jafnósvífna verðlagningu“ Hagnaðurinn dregst saman Hrönn stýrir Kríu Skoða að leita réttar síns vegna „óeðlilegra viðskiptahátta“ ríkisins Jónína tekur við af Elísabetu hjá BBA//Fjeldco Ráðinn forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Ofar Indó sigurvegari Ánægjuvogarinnar Bein útsending: Mannamót markaðsstofa landshlutanna Undirrituðu samstarfssamning við Southwest Airlines Brynja nýr fjármálastjóri LIVE Íslenska ánægjuvogin kynnt á Grand Hóteli Elísabet Hanna til Bara tala Heildarafli síðasta árs 28 prósent minni en 2023 Hópuppsögn hjá Sidekick Health Sjá meira