Úlfarnir upp í 3. sæti eftir öruggan sigur á Palace 30. október 2020 22:15 Wolves vann þægilegan sigur í kvöld. Visionhaus Wolves átti í neinum vandræðum með Crystal Palace er liðin mættust í eina leik ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld. Lokatölur 2-0 Úlfunum í vil. Rayan Ait Nouri kom Wolves yfir í sínum fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni á 18. mínútu. Aðeins níu mínútum síðar var Daniel Podence búinn að tvöfalda forystu Úlfanna og staðan 2-0 á innan við hálftíma. Fleiri urðu mörkin ekki og fóru Wolves með sigur af hólmi. Luka Milivojevic nældi sér í rautt spjald í liði Palace þegar fjórar mínútur voru til leiksloka og gestirnir enduðu því leikinn aðeins tíu á vellinum. Sigurinn lyftir Wolves upp í 3. sæti deildarinnar en liðið er nú með jafn mörg stig og toppliðin tvö frá Bítalborginni. Þau eiga þó bæði leik til góða. Crystal Palace situr sem fyrr í 9. sæti deildarinnar. Enski boltinn