Undirbúningur hafinn að afléttingu neyðarstigs Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 11. nóvember 2020 17:14 Landspítalinn í Fossvogi. Vísir/Vilhelm
Undirbúningur er hafinn á Landspítalanum við afléttingu neyðarstigs á spítalanum og er stefnt að því að færa spítalann niður af neyðarstigi og á hættustig á morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá viðbragðsstjórn og farsóttanefnd spítalans í dag en neyðarstigi var lýst yfir þann 25. október síðastliðinn. „Forsendur þessa er það mat viðbragsstjórnar og farsóttanefndar að tök hafi náðst á faraldri COVID-19 sem upp kom á Landakoti og spítalinn sé í stakk búinn til að starfa á hættustigi,“ segir í tilkynningunni. Það þýðir þó að áfram verða í gildi allar þær takmarkanir og varúðarráðstafanir sem nú eru í gildi. Á Landspítalanum eru nú 66 inniliggjandi vegna covid-19 og þar af 37 í einangrun. Tveir eru á gjörgæslu og eru báðir í öndunarvél. Alls hafa 165 þurft að leggjast inn í þriðju bylgju faraldursins en 471 sjúklingur er í eftirliti hjá covid-göngudeild, þar af 70 börn. Alls eru 114 starfsmenn spítalans í sóttkví eða einangrun. Fjórtán andlát hafa orðið á spítalanum í þriðju bylgju sem rekja má til covid-19.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Heilbrigðismál Landspítalinn Hópsýking á Landakoti Mest lesið Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Innlent Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Erlent Þau kvöddu á árinu 2024 Erlent Á vaktinni við lokunarpósta alla jólanótt Innlent Gott að geta sagt „þú ert hjartanlega velkominn“ Innlent Aðeins ein flugvél lent í Keflavík í dag Innlent Tveir vörðu jólanótt í fangaklefa Innlent Appelsínugular viðvaranir og vegir víða lokaðir Veður Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Innlent Dyr Péturskirkjunnar standa opnar Erlent Fleiri fréttir Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Hellisheiði og Þrengsli opna ekki fyrr en á morgun Aðeins ein flugvél lent í Keflavík í dag Útköll víða vegna óveðurs Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Gott að geta sagt „þú ert hjartanlega velkominn“ Appelsínugular viðvaranir og jólaboð hjá Hjálpræðishernum Á vaktinni við lokunarpósta alla jólanótt Tveir vörðu jólanótt í fangaklefa Gleðileg jól, kæru lesendur Vegir víða um land gætu lokast með litlum fyrirvara Varað við ferðalögum víða um land Margir á síðasta snúningi með jólapakkana Í sumum tilfellum eina hátíðlega stund dagsins Men Tolla komið í leitirnar: „Sannkölluð jólasaga“ Vonskuveður og þau sem eru á síðasta snúningi Fjúgandi hálka í kirkjugörðum Reykjavíkur Stolið hálsmen Tolla dúkkaði upp tuttugu árum síðar Nóg að gera hjá slökkviliðinu í nótt Mette óskaði Kristrúnu til hamingju Aðfangadagur: Hvar er opið og hve lengi? „Skiptir sannleikurinn engu máli?“ Fjölmenni gekk fyrir frið í miðborginni Rútur skildar eftir á Holtavörðuheiði og leiðinni lokað Vísnabók gefin til nýrra Hvergerðinga frá Hveragerðisbæ Vandræðamál sem ríkisstjórnin fær í arf Komust með flugvélinni á ögurstundu Stærstu mál stjórnarinnar bíða til 2026 Mínútu fyrr á ferðinni væri Tómas allur Allt kapp lagt á að landsmenn komist heim fyrir jól Sjá meira