Segir Repúblikana þrýsta á sig til að útiloka lögleg atkvæði í Georgíu Samúel Karl Ólason skrifar 16. nóvember 2020 23:19 Brad Raffensperger, innanríkisráðherra Georgíu, er verulega ósáttur við flokksbræður sína og áróður þeirra í tengslum við forsetakosningarnar. AP/Brynn Anderson
Brad Raffensperger, innanríkisráðherra Georgíu í Bandaríkjunum, segir að aðrir Repúblikanar hafi beitt hann miklum þrýstingi að undanförnu. Markmiðið sé að láta hann finna leiðir til að útiloka lögleg atkvæði frá talningu með því markmiði að snúa við naumu tapi Donald Trumps, forseta, í ríkinu. Joe Biden vann ríkið með um 14 þúsund atkvæðum eftir fyrstu talningu. Verið er að fara yfir þær niðurstöður aftur. Sjá einnig: Ætla að telja öll atkvæði Georgíu aftur Raffensperger segir að meðal annars hafi bæði hann og eiginkona hans fengið morðhótanir. Ein þeirra í skilaboðum sem í stóð: „Það er eins gott að þú klúðrir ekki þessari endurtalningu. Líf þitt veltur á því.“ Í viðtali við Washington Post segir Raffensperger að meðal þeirra sem hafi beitt hann þrýstingi séu Lindsey Graham, öldungadeildarþingmaður og dyggur stuðningsmaður Trumps, og þingmaðurinn Doug Collins, sem virðist leiða viðleitni Trumps til að sannfæra fólk um að svindlað hafi verið á honum í kosningunum. Raffensperger kallar Collins „lygara“ og „loddara“ í viðtalinu. Hann hefur sömuleiðis gert það á Facebook. Collins hefur gagnrýnt Raffensperger harðlega fyrir að styðja ekki ásakanir Repúblikana um kosningasvik betur og segir hann hafa lúffað fyrir Demókrötum. Innanríkisráðherrann hefur sagt að allar ásakanir um kosningasvik eigi að rannsaka. Nú sé staðan þó sú að engin trúverðug ásökun af því tagi og skala sem hefði áhrif á niðurstöður kosninganna hafi litið dagsins ljós. Hann segist gramur yfir stöðugum og innihaldslausum ásökunum sem Trump-liðar hafi varpað fram varðandi kosningarnar í Georgíu. Meðal þeirra er sú ásökun um að Dominion Voting Systems, fyrirtæki frá Colorado sem framleiðir kosningavélar, sé vinstri sinnað fyrirtæki með tengsl til Venesúela og að starfsmenn þess hafi gengið úr skugga um að þúsundir atkvæða til Trumps hafi ekki verið talin. Sjá einnig: Yfirvöld í öllum ríkjum segja kosningarnar hafa farið eðlilega fram Raffensperger segist sannfærður um að endurtalningin muni leiða í ljós að upprunalegu niðurstöðurnar hafi verið réttar. Nú þegar hafi nokkrar skýrslur skilað niðurstöðum sem séu nákvæmlega þær sömu og síðast. „Ég er verkfræðingur. Við horfum á tölur. Við horfum á gögn. Ég get ekki gert að því að misheppnaður stjórnmálamaður eins og Doug Collins sé að hlaupa um og ljúga að öllum. Hann er lygari,“ sagði Raffensperger. Collins gerði misheppnaða tilraun til að ná sæti í öldungadeildinni í nýafstöðnum kosningum. Talsmaður hans vísaði í tíst þingmannsins þegar blaðamaður Washington Post leitaði viðbragða hans. Í tístinu segir Colins að Raffensperger sé óhæfur í starfi sínu. Spurði hvort hann gæti komið í veg fyrir talningu atkvæða Í viðtali við Washington Post segir Raffensperger einnig að Graham hafi hringt í sig á föstudaginn og spurt sig út í lög sem snúa að undirskriftum utankjörfundaratkvæðaseðla. Hvort að pólitískar skoðanir starfsmanna Raffensperger gætu hafa leitt til þess að þeir samþykktu seðla þar sem undirskriftir stemmdu ekki fullkomlega og hvort að hann gæti sem innanríkisráðherra komið í veg fyrir talningu allra slíkra seðla. Það hefur lengi legið fyrir að kjósendur Demókrataflokksins og Joe Bidens voru líklegri til að greiða atkvæði með utankjörfundaratkvæði og þá líklegast póstatkvæði. Sjá einnig: Vara við „Rauðri hillingu“ á kjördag Raffenspergersagði að það hefði komið sér verulega á óvart að Graham hafi virst stinga upp á því að hann kæmi í veg fyrir talningu löglegra atkvæða. Það gæti hann ekki gert án dómsúrskurðar. „Það leit svo sannarlega út að hann hafi verið að falast eftir því,“ sagði Reffensperger. Graham segir það ekki hafa verið markmið sitt. Öldungadeildarþingmaðurinn frá Suður-Karólínu hafi eingöngu viljað læra hvernig undirskriftir séu staðfestar. Trump-liðar hafa höfðað mál og krefjast þess að fá að bera saman undirskriftir á umslögum utankjörfundaratkvæða og kjörseðlum. Reffensperger segir að hann muni alfarið berjast gegn því, þar sem það myndi opinbera hvað tiltekið fólk kaus og leynd atkvæða sé helgur hluti lýðræðislegra kosninga. Samkvæmt lögum þarf að láta kjósendur vita ef undirskriftir þeirra stemma ekki við þá sem er á skrá hjá hinu opinbera og gefa þeim tækifæri til að leiðrétta villuna. Þessi regla er til komin vegna málaferla Demókrataflokksins varðandi það að póstatkvæðum þeldökkra væri hafnað mun oftar en annarra hópa. Áhugasamir geta lesið útskýringu AP fréttaveitunnar um regluna hér. Donald Trump tísti nú í kvöld um það að Trump-liðar fengju ekki að skoða undirskriftir kjörseðla og sagði að án þess væri endurtalningin marklaus. Þá gagnrýndi hann það að kjósendum væri gefið tækifæri til að laga undirskriftir sínar og gaf í skyn að það væri ekki í takt við stjórnarskrá Bandaríkjanna. Georgia won t let us look at the all important signature match. Without that the recount is MEANINGLESS. Open up unconstitutional Consent Decree, NOW! @BrianKempGA— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) November 16, 2020
Bandaríkin Forsetakosningar í Bandaríkjunum Donald Trump Tengdar fréttir Framboð Trump dregur stærstu ásakanir sínar í Pennsylvaníu til baka Dómsmál sem framboð Donalds Trump Bandaríkjaforseta rekur vegna kosningaúrslitanna í Pennsylvaníu getur ekki hugsanlega hnikað úrslitunum til eftir að framboðið lét stærstan hluta ásakana sinna um meint kosningasvik niður falla. 16. nóvember 2020 10:34 Trump virðist viðurkenna ósigur á Twitter Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur farið mikinn á Twitter undanfarna daga í kjölfar kosninganna vestanhafs. 15. nóvember 2020 14:30 Til ryskinga kom í mótmælum stuðningsmanna Trump Þúsundir stuðningsmanna Donald Trump Bandaríkjaforseta söfnuðust saman í höfuðborginni Washington í gær til þess að lýsa yfir stuðningi við hann. 15. nóvember 2020 11:51 Fjarar undan málsóknum Trump vegna kosningaúrslitanna Langsóttar tilraunir Donalds Trump Bandaríkjaforseta og framboðs hans til þess að tefja endaleg úrslit forsetakosninganna urðu fyrir röð áfalla í dag. 13. nóvember 2020 20:12 Auðvelda Trump að sætta sig við tap og tryggja hollustu stuðningsmanna Markmið ásakana Donald Trumps og bandamanna hans um umfangsmikið kosningasvindl er ekki að snúa niðurstöðu forsetakosninganna. Þess í stað er þeim ætlað að tryggja forsetanum hollustu sinna helstu stuðningsmanna. 9. nóvember 2020 14:09 Mest lesið Björguðu lambinu sem vildi ært komast til frænda sinna Innlent Enn besta lausnin að kaupa Grænland Erlent Kölluð til vegna æsts húsráðanda í Hafnarfirði að horfa á leik á HM Innlent Nord Stream skemmdarverkin: Yfirvofandi réttarhöld gætu orðið bandamönnum erfið Erlent Einelti kvenna birtist oft með lúmskari hætti Innlent Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent Mætti ekki í útför föður síns Erlent Hefur barist í sjö ár eftir að hafa kært nauðgun á Ítalíu Innlent Tyrkir neita skipi fullu af hommum um að leggja að bryggju Erlent Lést á Fimmvörðuhálsi Innlent Fleiri fréttir Tyrkir neita skipi fullu af hommum um að leggja að bryggju Kínverjar gera tilraunir með langdræga eldflaug á Kyrrahafi Nord Stream skemmdarverkin: Yfirvofandi réttarhöld gætu orðið bandamönnum erfið Tíu látnir í árásum Rússa á Kænugarð Enn besta lausnin að kaupa Grænland Mætti ekki í útför föður síns Tugþúsundir mótmæltu í Tirana Ræddi við bæði Pútín og Selenskí Hitabylgja skekur Bandaríkin á 250 ára afmælisdaginn Gerðu umfangsmiklar árásir á olíuinnviði Rússa Vikulöng jarðarför Khameini hafin Dauðsföllum fjölgaði um tugi prósenta í hitabylgjunni Ný þungunarrofslög taka gildi í Færeyjum Afhjúpa alþjóðlegt net manna sem byrla og brjóta gegn konum Trump sparkar í bandamenn í aðdraganda Nató-fundar í Ankara Fyrrum Ólympíufari ákærður fyrir að skemma laugina við Lincoln-minnismerkið Gary Glitter ákærður fyrir kynferðisbrot eina ferðina enn Að minnsta kosti átján látnir eftir umfangsmiklar árásir „Antonio hefur með eigin augum séð byggingar hrynja“ Páfagarður bannfærir alla presta og fylgjendur bræðralagsins Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Verða líklega bannfærðir eftir vígslu gegn vilja páfa Þrettán látnir hið minnsta eftir stóra drónaárás Rússa Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Klifu á topp Empire State-byggingarinnar Þýska landsliðið spegli land stöðnunar Eldur braust út í fjölbýlishúsi og nokkrir eru látnir Mótmælendur í Suður-Afríku krefjast brottflutnings innflytjenda Úkraínumenn kaupa sextán Gripen E frá Svíþjóð Dæmdur í fangelsi fyrir að hrella fyrrverandi kærustu Sjá meira
Framboð Trump dregur stærstu ásakanir sínar í Pennsylvaníu til baka Dómsmál sem framboð Donalds Trump Bandaríkjaforseta rekur vegna kosningaúrslitanna í Pennsylvaníu getur ekki hugsanlega hnikað úrslitunum til eftir að framboðið lét stærstan hluta ásakana sinna um meint kosningasvik niður falla. 16. nóvember 2020 10:34
Trump virðist viðurkenna ósigur á Twitter Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur farið mikinn á Twitter undanfarna daga í kjölfar kosninganna vestanhafs. 15. nóvember 2020 14:30
Til ryskinga kom í mótmælum stuðningsmanna Trump Þúsundir stuðningsmanna Donald Trump Bandaríkjaforseta söfnuðust saman í höfuðborginni Washington í gær til þess að lýsa yfir stuðningi við hann. 15. nóvember 2020 11:51
Fjarar undan málsóknum Trump vegna kosningaúrslitanna Langsóttar tilraunir Donalds Trump Bandaríkjaforseta og framboðs hans til þess að tefja endaleg úrslit forsetakosninganna urðu fyrir röð áfalla í dag. 13. nóvember 2020 20:12
Auðvelda Trump að sætta sig við tap og tryggja hollustu stuðningsmanna Markmið ásakana Donald Trumps og bandamanna hans um umfangsmikið kosningasvindl er ekki að snúa niðurstöðu forsetakosninganna. Þess í stað er þeim ætlað að tryggja forsetanum hollustu sinna helstu stuðningsmanna. 9. nóvember 2020 14:09
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent
Biðlar til þjófa að skila ómetanlegu þýfi: „Ef þið skilið ekki þessu dóti, kæru þjófar, þá er Bubba að mæta“ Innlent