Tíu Arsenal menn héldu jöfnu gegn Leeds Arnar Geir Halldórsson skrifar 22. nóvember 2020 18:26 Pepe rekinn af velli. vísir/Getty Arsenal heimsótti nýliða Leeds United í ensku úrvalsdeildinni í dag en bæði lið voru um miðja deild þegar kom að leiknum í dag. Fyrri hálfleikur var markalaus þó bæði lið hafi fengið ágætis sóknarmöguleika. Nicolas Pepe fékk tækifæri í byrjunarliði Arsenal í dag og sá nýtti tækifærið hörmulega því hann lét reka sig af velli á 52.mínútu fyrir að hafa skallað Ezgjan Alioski. Afleit hegðun hjá Fílbeinsstrendingnum. Einum færri lögðust Arsenal menn í skotgrafirnar og beittu skyndisóknum. Bæði lið fengu fín færi til að gera út um leikinn en allt kom fyrir ekki og markalaust jafntefli niðurstaðan. Arsenal í 11.sæti deildarinnar með 13 stig eftir níu leiki en Leeds hefur tveimur stigum minna í 14.sæti. Enski boltinn