Sport

Vilja forðast kyn­ferðis­lega mynda­töku í frjálsum

Sindri Sverrisson skrifar
Yaroslava Mahuchikh og kollegar hennar í frjálsíþróttaheiminum ættu að upplifa meiri nærgætni af hendi sjónvarpstökumanna, skili nýju leiðbeiningarnar árangri.
Yaroslava Mahuchikh og kollegar hennar í frjálsíþróttaheiminum ættu að upplifa meiri nærgætni af hendi sjónvarpstökumanna, skili nýju leiðbeiningarnar árangri. Getty

Evrópska frjálsíþróttasambandið og Samband evrópskra sjónvarpsstöðva hafa gefið út leiðbeiningar sem ætlað er að koma í veg fyrir kynferðislega framsetningu á frjálsíþróttakonum í keppni.

Leiðbeiningabæklinginn má finna með því að smella hér en hann ber yfirskriftina: Hækkum rána - Leiðbeiningar um virðingarfulla fjölmiðlaumfjöllun í frjálsíþróttum kvenna.

Mælst er til þess að forðast langvarandi nærmyndir af ákveðnum líkamshlutum, sem og að forðast það að sjónarhornið sé neðarlega eða að íþróttakonurnar séu myndaðar aftan frá.

Í leiðbeiningunum má meðal annars finna innlegg þar sem Holly Bradshaw, Ivana Španović og Blanka Vlašić lýsa því hvað sé best að hafa í huga þegar verið er að mynda þeirra greinar.

Leiðbeiningarnar eru gefnar út í kjölfar athugasemda frá íþróttakonum sem segja að ákveðin sjónarhorn geti valdið óþægindum og truflun, með því að beina athyglinni frá íþróttalegum árangri, að því er fram kemur í frétt Reuters.

„Þróun þessara leiðbeininga er mikilvægt skref í átt að því að útrýma skaðlegri framsetningu á konum í íþróttinni okkar, um leið og við höldum uppi hæsta gæðastigi í frásögnum og tæknilegri framsetningu,“ segir Dobromir Karamarinov, forseti Frjálsíþróttasambands Evrópu, í pistli í leiðbeiningabæklingnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×