Erlent

Dómsmálaráðherrann hættir skömmu fyrir embættistöku Bidens

Samúel Karl Ólason skrifar
William Barr og Donald Trump. Barr tók við embætti dómsmálaráðherra eftir að Trump rak Jeff Sessions fyrir það að segja sig frá Rússarannsókninni svokölluð.
William Barr og Donald Trump. Barr tók við embætti dómsmálaráðherra eftir að Trump rak Jeff Sessions fyrir það að segja sig frá Rússarannsókninni svokölluð. EPA/Anna Moneymaker

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, tilkynnti nú í kvöld að William Barr, dómsmálaráðherra, væri að hætta í starfi sínu. Í tísti segir Trump að Barr vilji hætta, einungis fimm vikum áður en starfstímabil hans rennur út, til að verja hátíðunum með fjölskyldu sinni.

Jeff Rosen, aðstoðardómsmálaráðherra, mun sinna stöðunni sem starfandi dómsmálaráðherra.

Í tísti sínu segir Trump að samband hans og Barr hafi verið mjög gott og ráðherrann fráfarandi hafi staðið sig frábærlega í starfi.

Barr hefur verið ötull stuðningsmaður forsetans fráfarandi og hefur ítrekað verið sakaður um að beita dómsmálaráðuneytinu í þágu Trumps. Hann hefur látið rannsaka pólitíska andstæðinga Trumps og stöðvað rannsóknir gagnvart bandamönnum forsetans og vinum hans eins og Michael Flynn og Roger Stone.

Barr lýsti því þó yfir í viðtali fyrir skömmu að starfsmenn dómsmálaráðuneytisins hefðu ekki fundið sannanir fyrir þeim umfangsmiklu kosningasvikum sem forsetinn segir að hafa kostað sig sigur í kosningunum í síðasta mánuði.

Í kjölfar þess neitaði Trump að segja hvort hann bæri enn traust til Barr. Stuðningsmenn forsetans snerust gegn Barr og sökuðu hann meðal annars um að tilheyra Djúpríkinu svokallaða.

Þá bárust fregnir af því að Barr væri að íhuga að hætta og sömuleiðis höfðu fjölmiðlar vestanhafs heimildir fyrir því að Trump væri svo reiður út í Barr að hann ætlaði sér að reka hann.

Trump birti afsagnarbréf Barr á Twitter og þar fer ráðherrann einkar fögrum orðum um forsetann. Í afsagnarbréfi sínu baðar Barr Trump lofi fyrir allt frá því að hafa byggt upp öflugasta efnahag heims í að hafa bjargað milljónum mannslífa í tengslum við heimsfaraldur nýju kórónuveirunnar.

Hann þakkar Trump fyrir fund þeirra um staðhæfingar Trumps um kosningasvik nú í kvöld og staðhæfir að ráðuneytið muni halda áfram að rannsaka innihaldslausar ásakanir Trumps. Barr segir það mikilvægt að standa vörð um heilindi kosninga á þessum tímum þar sem gjá hafi myndast á milli Bandaríkjamanna.

Mikilvægt sé að ýta undir trúverðugleika niðurstaðna kosninganna.

Þá segir Barr að hann sé stoltur af rullu sinni í ríkisstjórn Trumps og gagnrýnir pólitíska andstæðinga hans fyrir að hafa ekki staðið við bakið á forsetanum. Hann sakar þá sömuleiðis um að hafa beitt svívirðilegum og sviksömum aðferðum gegn forsetanum.

Það hafi kristallast í ásökunum gegn Trump um að hafa starfað með Rússum varðandi afskipti þeirra af forsetakosningunum 2016.

Barr var í fyrra sakaður um að haga sér eins og einkalögmaður Trumps í tengslum við niðurstöður Rússarannsóknarinnar svokölluðu. Þá hafði ráðherrann gefið út „samantekt“ á niðurstöðum Robert Mueller, sérstaks rannsakanda Dómsmálaráðuneytisins, og hreinsað Trump af allri sök.

Mueller sjálfur var ósáttur við þessi skrif Barr.


Tengdar fréttir

Barr kannast ekki við svindl og Giuliani ekki við náðunarspjall

William Barr, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, segir engar vísbendingar liggja fyrir um að stórfelld kosningasvik hefðu átt sér stað í nýafstöðnum forsetakosningum. „Hingað til höfum við ekki séð svindl af þeirri stærðargráðu að það hefði leitt til annarra úrslita í kosningunum,“ sagði Barr í viðtali við Associated Press.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×