Engin próf í húsakynnum Háskóla Íslands í vor Sylvía Hall skrifar 23. mars 2020 18:51 Engin próf verða í húsakynnum Háskóla Íslands í vor. Vísir/Vilhelm
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, hefur tilkynnt nemendum að próf verði ekki haldin í húsakynnum háskólans í vor. Þetta var ákveðið eftir fund neyðarstjórnar Háskóla Íslands í morgun. Ekki liggur fyrir hvernig framkvæmdin verður en fræðslusvið og deildir munu ákveða tilhögun og verður breytt framkvæmd kynnt eigi síðar en 30. mars næstkomandi. Munu umsjónarkennarar í samráði við deildirnar ákveða hvernig framkvæmd námsmatsins verður. Stjórnendur skólans hvetja jafnframt fræðisvið, deildir og kennara til að taka tillit til þeirra krefjandi aðstæðna sem eru nú uppi í samfélaginu og þannig létta álagi af nemendum í tengslum við námsmat. Markmiðið sé að nemendur geti lokið þeim námskeiðum sem þeir eru skráðir í. Jóna Þórey Pétursdóttir, forseti Stúdentaráðs, segir jákvætt að von sé á niðurstöðu. Nýlega hafi Stúdentaráð staðið fyrir könnun á líðan nemenda vegna COVID-19 og þar hafi framkvæmd lokaprófa verið stórt áhyggjuefni. „Ein helsta athugasemdin sem við fengum var að óvissan væri búin að vera of mikil of lengi,“ segir Jóna Þórey í samtali við Vísi. Óvissan sé þó enn til staðar en hún voni að deildirnar ákveði framkvæmd í samráði við nemendur.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Skóla - og menntamál Mest lesið Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Erlent Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Innlent Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Innlent Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Erlent Eldflaug Bezos sprakk í loft upp Erlent Erfitt að fullyrða nokkuð um orsakasamhengi milli 4G og fæðingartíðni Innlent Fleiri fréttir Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Grunaður um að ofsækja son sinn sem sleit á öll tengsl Átta vilja vera forstjóri Hafró Eldur kviknaði í veitingastað í nýja miðbænum á Selfossi Erfitt að fullyrða nokkuð um orsakasamhengi milli 4G og fæðingartíðni Tónlistarskólar FÍH og Eddu Borg sameinast í þéttum takti Handtökur í tengslum við ræktun og þrjú skotvopn haldlögð Séra Friðrik fær ekki að rísa strax Sjá meira