Viðskipti innlent

Ballarin segist eiga hluti í Icelandair í gegnum aðra aðila

Sylvía Hall skrifar
Michele Ballarin.
Michele Ballarin. Vísir/Baldur

Bandaríski fjárfestirinn Michelle Ballarin segist eiga hluti í Icelandair í gegnum aðra aðila sem haldi á hlutunum fyrir sig. Hún sé þó raunverulegur eigandi hlutanna, en er þó ekki á meðal tuttugu stærstu hluthafa samkvæmt hluthafalista.

Þetta kemur fram í umfjöllun Kveiks í kvöld þar sem rætt var við Ballarin. Fjallað var um það í september á síðasta árið að hún hefði gert bindandi tilboð í hlutafjárútboði Icelandair og hermdu heimildir fréttastofu að tilboðið hljóðaði upp á sjö milljarða króna. Tilboði sem samsvaraði sömu upphæð var hafnað af stjórn félagsins.

Vísir greindi frá því eftir hlutafjárútboðið á síðasta ári að Ballarin liti svo á að það hefði verið vonbrigði að „drífa ekki alla leið“, en almannatengillinn Gunnar Steinn Pálsson sagði hana hafa mikinn áhuga á að vera í viðskiptum hér á landi.

Í umfjöllun Kveiks staðfesti Ballarin að tilboðinu hefði verið hafnað og taldi hún að stjórnendur Icelandair hafi óttast að hún gæti farið fram á breytingar á stjórnendahópnum. Henni hafi verið bent á að stefna Icelandair vegna tilboðsins en sjálf hafi hún ekki viljað fara inn í félagið með þeim hætti.

Ballarin er hvað þekktust fyrir að hafa keypt eignir úr þrotabúi WOW air á sínum tíma, en hún sagðist stefna á að koma aftur á millilandaflugi á vegum félagsins. Hún segir þau áform enn standa og hefur hún hugmyndir um að sameina Icelandair og WOW í eitt alþjóðlegt flugnet.

Í janúar síðastliðnum var USAerospace Associates LLC, félag í eigu Ballarin, dæmt til að greiða tveimur forriturum rúmlega fjörutíu milljón krónur í vangoldin laun. Þeir höfðu tekið að sér að setja upp bókunarkerfi fyrir WOW air, en höfðuðu mál eftir að verktakasamningi var sagt upp við þá fyrirvaralaust í ársbyrjun 2020.

Var félag Ballarin dæmt til að greiða forriturunum rúmlega fjörutíu milljónir króna auk dráttarvaxta frá september til nóvember 2019. Þá þurfti félagið að greiða málskostnað, um eina og hálfa milljón króna.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×