Eftir fjögurra klukkustunda málflutning sækjenda og verjenda greiddu þingmenn atkvæði og var niðurstaðan sú að sex þingmenn Repúblikanaflokksins greiddu atkvæði með því að löglegt væri að rétta yfir fyrrverandi forseta fyrir meint embættisbrot. Atkvæðagreiðslan fór því 56-44.
Það voru þau Susan Collins, Lisa Murkowski, Ben Sasse, Pat Toomey, Mitt Romney og Bill Cassidy sem greiddu atkvæði með Demókrötum.
Málflutningur Demókrata hófst á myndbandi þar sem meðal annars var sýnt frá árásinni á þinghúsið, ræðu Trumps í aðdraganda árásarinnar, ítrekuðum staðhæfingum hans um að umfangsmikið kosningasvindl hefði kostað hann sigur í forsetakosningunum í nóvember og sömuleiðis ræðu og tíst sem hann sendi út að kvöldi 6. janúar.
Sjá einnig: Saka Trump um að hafa miðað hlaðinni fallbyssu á þingið
Fulltrúadeildarþingmaðurinn Jamie Raskin, sem leiðir sækjendateymið, sagði í kjölfar myndbandsins að ef hegðun Trumps væri ekki nægileg til að sakfella hann fyrir embættisbrot, væri það hreinlega ekki hægt.
Raskin sagði einnig frá því að hann hefði boðið dóttur sinni í þinghúsið þann 6. janúar, þegar niðurstöður forsetakosninganna voru formlega staðfestar. Hún hafði orðið vör við umræðu um væntanleg mótmæli stuðningsmanna Trumps en Raskin sagði að hún yrði óhullt. Hún yrði í þinghúsi Bandaríkjanna og annað kæmi ekki til greina.
Dóttir hans og aðrir fjölskyldumeðlimir hans þurftu þó að endingu að leita sér skjóls í þinghúsinu og fela sig á skrifstofu þar. Þegar Raskin hitti hana og tengdason sinn aftur, lýsti hún því yfir að hún vildi ekki koma aftur í þinghúsið.
Sögðu málaferlin sjónarspil
Málflutningur verjenda forsetans sneri að mestu að því að það færi gegn stjórnarskrá Bandaríkjanna að rétta yfir honum. Eins og verjendurnir höfðu gefið í skyn að þeir myndu gera, sökuðu þeir Demókrata um pólitískt sjónarspil og sögðu þá vera að hefna sína á Trump.
Sjá einnig: Saka Demókrata um pólitískt sjónarspil með ákærunni gegn Trump
Trump var ákærður fyrir embættisbrot öðru sinni þann 13. janúar, sjö dögum áður en hann lét af embætti. Hann er eini forseti Bandaríkjanna sem hefur verið ákærður fyrir embættisbrot tvisvar sinnum.
Sjá einnig: Trump ákærður fyrir embættisbrot öðru sinni
Hér má sjá upphaf málflutnings Bruce Castor, sem leiðir teymi Trumps. Hann hélt því fram að það væri óþarfi að ákæra Trump, því kjósendur hefðu þegar hafnað honum.
Vert er að taka fram að Trump er í raun ákærður fyrir að hvetja til uppreisnar og snýr kæran sérstaklega að hlutverki forsetans í því að æsa fólk upp, sem á endanum braut sér leið inn í þinghús Bandaríkjanna þann 6. janúar, með því markmiði að stöðva formlega staðfestingu úrslita forsetakosninganna í nóvember.
Fimm létu lífið í árásinni og þar af einn lögregluþjónn og kona sem var skotin af löggæslumanni.
Réttarhöldin munu halda áfram klukkan fimm á morgun, að íslenskum tíma.