Stjörnumaður valinn í sænska landsliðið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. febrúar 2021 12:32 Alexander Lindqvist í leik með Stjörnunni í Domino´s deildinni í vetur. Vísir/Vilhelm Stjörnumaðurinn Alexander Lindqvist er í fimmtán manna landsliðshópi Svía og er því á leiðinni í búbblu í Istanbul á sama tíma og íslenska landsliðið kemur saman seinna í þessum mánuði.
Leikmenn sænska landliðsins eru að spila með félögum víða um Evrópu en flestir þeirra spila á Spáni eða fimm leikmenn. Í hópnum eru líka leikmenn sem spila í Svíþjóð, í Frakklandi, á Ítalíu, í Belgíu, í Eistlandi og svo auðvitað á Íslandi. Gamli NBA-leikmaðurinn Jonas Jerebko, sem er án félags, kemur nú aftur inn í sænska landsliðið fyrir þessa síðustu leiki liðsins í undankeppni Eurobasket 2022. View this post on Instagram A post shared by Sweden Basketball (@swe.basketball) Alexander Lindqvist er á sínu fyrsta tímabili í Garðabænum en hann er með 16,1 stig og 6,1 fráköst að meðaltali á 27,6 mínútum í Domino´s deildinni. Lindqvist átti sinn besta leik á móti Njarðvík þegar hann setti niður fimm þriggja stiga körfur og skoraði alls 25 stig. Svíar eru í baráttunni um eitt af þremur efstu sætunum í riðlinum en þau skila öll sæti í úrslitakeppni EM á næsta ári. Króatar hafa þegar tryggt sér sæti á Eurobasket en Svíþjóð, Holland og Tyrkland berjast um hin tvö lausu sætin. Svíar hafa unnið einn af fyrstu fjórum leikjum sínum eins og Tyrkir en Hollendingar eru með tvo sigra og tvö töp. Búbblan fer fram á á heimavelli Tyrkja í Istanbul. Svíar mæta þar fyrst heimamönnum í tyrkneska landsliðinu og svo Hollendingum í seinni leiknum. Svíar unnu fyrri leikinn á móti Tyrkjum og þá var Alexander Lindqvist með ellefu stig og fjögur fráköst.
Dominos-deild karla Stjarnan Mest lesið Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ Fótbolti Liðalaus Stones eftirsóttur Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Fótbolti Gagnrýnir harðlega „tilefnislausar samsæriskenningar“ Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Fótbolti „Tek fyrri hálfleikinn á mig“ Fótbolti Hversu heitt er sætið hans Lárusar Orra? Sport Óskar Smári Haraldsson: „Margt í okkar leik sem var ekki í lagi“ Fótbolti Fleiri fréttir Sigurinn á Bretum ýtti íslensku strákunum upp heimslista körfuboltans Strákarnir fengu silfur á EM Sigur á Svíum og sæti í A-deild tryggt LeBron James ekki enn tilbúinn að gefa upp sitt næsta lið Reyndur sænskur sonur til Ármenninga Íslensku strákarnir í undanúrslit Ísland á tvo stigahæstu leikmenn mótsins Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Stjörnur Sixers reyna að freista LeBron Fjölnir þiggur sæti Aþenu Gary Payton þjálfar Jeremy Pargo í BIG3-deildinni Íslensku strákarnir héldu sigurgöngunni áfram Minnist Kinu Rochford: „Einn af þeim eftirminnilegri sem maður hefur verið með í liði“ „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Sveinn Búi snýr heim og semur við Hött Móðir Kinu Rochford syrgir: „Á röngum stað“ Tólfta sæti niðurstaðan eftir tap fyrir Lettum Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik Kinu Rochford sagður myrtur Annar stórsigur strákanna á EM Grindvíkingar halda sænsku landsliðskonunni Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Hélt hann yrði frá í sex mánuði en byrjar strax í fyrsta leik Liðin senda LeBron James raddskilaboð og reyna að selja sig Bara risaleikir milli jóla og nýárs Frank Aron Booker yfirgefur Val og semur við Álftanes Þungt tap gegn Tyrkjum og Svíar bíða Sjá meira