Ástralskur sauður rúinn hálfri kengúru Hólmfríður Gísladóttir skrifar 24. febrúar 2021 20:59 Ástralskir miðlar greindu frá því að ullin hefði vegið á við hálfa fullorðna kengúru. Veikburða sauður fannst í Ástralíu á dögunum, sem er ef til vill ekki í frásögur færandi nema vegna þess að skepnan hafði ekki verið rúin í fjölda ára og var 35 kílóum léttari þegar snyrtingu lauk.
Sá sem fann sauðinn setti sig samstundis í samband við Edgar's Mission Farm Sanctuary nærri Lancefield í Viktoríuríki. Þar brugðust menn hratt við, sóttu sauðinn og beittu á hann skærunum. Sauðurinn, sem hlaut nafnið Baarack, virðist eitt sinn hafa verið eyrnamerktur en merkið tapast, mögulega vegna veglegrar ullarhúfunnar. „Það þarf að rýja kindur að minnsta kosti einu sinni á ári, annars heldur ullinn áfram að vaxa og vaxa, eins og í þessu tilviki,“ hefur Reuters eftir einum starfsmanna Edgar's Mission. Hann sagði klaufir dýrsins í ágætu ástandi eftir að hafa reikað um grýtt skóglendið þar sem hann fannst en kauði hafi verið vannærður og allt að því sjónlaus vegna ullarfargansins. Baarack ku vera við ágæta heilsu nú þegar hann hefur verið rúinn og komið fyrir hjá öðru umkomulausu sauðfé griðarstaðarins.
Dýr Dýraheilbrigði Ástralía Landbúnaður Mest lesið Egill Þór er látinn Innlent Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Innlent Lokað um Þrengsli og vegir víða á óvissustigi Veður Flugferðum aflýst Innlent „Þetta er farið að að bera meira keim af einelti en löglegri stjórnsýslu” Innlent Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Erlent Nýir ráðherrar ætli að vinna saman og ekki loka sig af Innlent Flæddi inn í hús á Arnarnesi Innlent Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Erlent Lyklaskipti í máli og myndum: „Þetta er voldugur lykill“ Innlent Fleiri fréttir Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Fimmtugur geðlæknir ók bílnum Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann Bifreið ekið á hóp fólks á jólamarkaði Hefja aftur leit að MH370 rúmum tíu árum eftir hvarfið Vara við upprisu ISIS Sjö ára stúlka stungin til bana í skóla Zagreb Eins og Pelicot hafi geymt glæpina á hörðu drifi í huga sínum Repúblikanar höfnuðu fjárlagafrumvarpi sem Trump studdi Sænskur rappari skotinn til bana í bílastæðahúsi Skoða hvort stunguárás hafi átt að líkjast morðinu í New York Mangione líka ákærður af alríkissaksóknurum Saksóknari sagður óhæfur í síðasta málinu gegn Trump Þrjátíu og fimm börn tróðust undir á jólahátíð Danskt sjúkrahús kært til lögreglu vegna tilrauna á ungum drengjum Musk og Trump valda uppnámi í Washington Skorar vestrið á hólm í 21. aldar einvígi Vaktin: Dominique Pelicot dæmdur í tuttugu ára fangelsi Hætta að rukka í almenningssamgöngurnar Dómar yfirvofandi í máli Pelicot Ætla að birta Gaetz-skýrsluna eftir allt saman Sjá meira