Enginn skjálfti yfir þremur í nótt Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 26. febrúar 2021 06:34 Frá gasmælingum vísindamanna á Reykjanesi í fyrradag í kjölfar stóra skjálftans. Vísir/Vilhelm Skjálftahrinan á Reykjanesskaga er enn í gangi og hafa fjölmargir litlir skjálftar mælst í gærkvöldi og nótt á svæðinu.
Enginn þeirra hefur þó verið yfir þremur að stærð heldur hafa þeir flestir verið undir tveimur að stærð að sögn Einars Hjörleifssonar, náttúruvársérfræðings á Veðurstofu Íslands. Klukkan 05:58 varð þó einn skjálfti að stærðinni 2,5 um 0,7 kílómetra suðvestur af Keili samkvæmt töflu á vef Veðurstofunnar. Einar segir engin merki um gosóróa á svæðinu en í dag fáist niðurstöður úr gervihnattamynd sem eigi að sýna hvort landris sé hafið eða hvort kvikuinnskot sé sjáanlegt. Þá er skjálftavirknin enn bundin við það svæði sem verið hefur, það er frá Krýsuvík og Kleifarvatni að Þorbirni. Enn er því engin virkni austan Kleifarvatns, nánar tiltekið í og við Brennisteinsfjöll, en vísindamenn hafa varað við því að skjálfti allt að 6,5 að stærð geti orðið á því svæði. Á vef Veðurstofunnar segir í tilkynningu að skjálftahrinan sé enn í gangi en rúmlega 4.200 jarðskjálftar hafi verið staðsettir með sjálvirka jarðskjálftamælikerfi Veðurstofu Íslands frá því að hrinan hófst 24. febrúar. Stærsti skjálftinn í hrinunni mældist 5,7 að stærð og varð klukkan 10:05 síðastliðinn miðvikudag.
Eldgos og jarðhræringar Jarðhræringar á Reykjanesi Mest lesið Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Innlent Fleiri fréttir Verðhækkanir varpa skugga á grillsumarið mikla Isavia fær áheyrn um hvort reka hafi mátt mann vegna aldurs Laupur vekur mikla athygli sundlaugagesta í Árbæjarlaug Fórnuðu gömlu húsi fyrir slökkviliðsæfingu Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Ófremdarástand á Hverfisgötu og verðhækkanir á grillmat „Hann breytir börnunum okkar í nikótínþræla“ Þingmenn vilja vita meira um hvers vegna Úlfar hætti störfum Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Fjórtán hvíldartímabrot á 28 dögum Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Bílar Íslendinga ekki tryggðir sé þeim stolið erlendis „Maður heyrir svona drunur áður en bylgjan kemur“ Helsti valdamaður flugsins var oftast utan sviðsljóssins Fljótandi ruslsuga fjarlægir rusl úr sjónum við gömlu höfnina Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Ökumenn í tékki á Suðurlandsvegi og Grímsey skelfur „Jómfrúarræður“ séu barn síns tíma Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Ekki á dagskrá að flýta atkvæðagreiðslu um ESB-viðræður Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Hjörtur Torfason er látinn Sjá meira