Íslendingasumar og allt í blóma? Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar 16. mars 2021 15:00 Þeir eru fjölmargir sem tala af miklum sannfæringarkrafti, með rómantískt blik í auga, að fráleitt sé að breyta fyrirkomulagi á landamærum Íslands, til að erlendir ferðamenn geti heimsótt okkur á ný. Miklu öruggara sé, að skella slagbrandi kirfilega fyrir, svo við getum notið þess að ferðast „frjáls“ á litlu eyjunni okkar. Íslendingar geti alveg bjargað ferðaþjónustunni. Þeir „leiki sér að því að fylla öll hótel“, líkt og kjörinn fulltrúi orðaði það í Silfrinu síðastliðinn sunnudag. Þó Íslendingar séu vissulega mikilvægir aufúsugestir þeirra fyrirtækja, sem yfir höfuð eru í stakk búin til að þjóna þeim, þá getur „Íslendingasumar“ í heildarsamhenginu aldrei orðið meira en lítill plástur á svöðusár. Það er mikilvægt að menn kveiki á því og geri sér grein fyrir þeim samfélags- og persónulega kostnaði sem hlýst af því blæðandi sári. Alvarlegar afleiðingar Fyrir réttu ári síðan, hrundi íslensk ferðaþjónusta til grunna nánast á einni nóttu. Afleiðingar þessa hruns ættu að vera flestum kunnar: Atvinnuleysi á Íslandi hefur aldrei mælst hærra. Beinn samdráttur í gjaldeyristekjum er um 350 milljarðar kr. (reyndar spöruðust um 130 milljarðar vegna þess að Íslendingar ferðuðust lítið til útlanda). Ríkissjóður tapar um milljarði á degi hverjum. Hratt gengur á gjaldeyrisvaraforða Seðlabankans. Landsframleiðsla á mann dróst saman um 8,2% á mann á síðasta ári, en hefði örugglega dregist mun meira saman, hefðu stuðningsaðgerðir ríkisins ekki komið til. Fjöldi fyrirtækja, fjölskylda og einstaklinga í ferðaþjónustutengdum rekstri hefur upplifað ólýsanlega tíma, staðið frammi fyrir rekstrarerfiðleikum af áður óþekktri stærðargráðu og mikilli óvissu um framtíðina. Mörg þeirra ramba nú á barmi gjaldþrots. Gistinætur Íslendinga duga skammt En af hverju mun Íslendingasumar ekki bjarga málunum? Til þess að átta sig á því er nauðsynlegt að hafa nokkrar staðreyndir á hreinu. Íslendingar eru og hafa í gegnum tíðina verið tiltölulega lítið brot af viðskiptavinahópi íslenskrar ferðaþjónustu. Heimamarkaðurinn er örsmár. Í flestum Evrópuríkjum og á Nýja-Sjálandi, sem oft er vísað til, er þessu öðruvísi farið. Þar er heimamarkaðurinn stærsti og mikilvægasti markaðurinn. Gistinætur eru ágætur mælikvarði á umsvif í ferðaþjónustu. Fjöldi gistinátta á hótelum, á landinu öllu, dróst saman um 92% á tímabilinu apríl til desember 2020, á Íslendingasumrinu mikla. Það á ekki að koma neinum á óvart að fjöldi hótela hefur verið lokað. Í venjulegu árferði vega gistinætur Íslendinga um 10% af heildarfjölda gistinátta á landinu. Það þýðir að níu af hverjum tíu gestum á íslenskum gististöðum eru erlendir gestir. Það segir sig sjálft að þegar eitthvað sem vegur 90% í jöfnu dregst saman um meira en 90%, þá geta þessi 10% sem eftir standa, seint vegið það upp. Allt veltur á erlendum ferðamönnum Fjárfesting í ferðaþjónustu sem og allur rekstur og starfsmannahald, miðast við að erlendir ferðamenn komi til landsins. Komur þeirra er forsenda fyrir sjálfbærni þeirra fjárfestinga sem ráðist hefur verið í á undanförnum árum. Það er jafnframt forsenda þess að virkja megi það starfsfólk sem nú situr aðgerðalaust og bíður eftir að ferðaþjónustan taki við sér á ný. Á árinu 2020 buðu ferðaþjónustufyrirtæki upp á alls kyns tilboð, sem Íslendingar voru nokkuð duglegir að nýta sér, með ferðagjöfina upp á vasann. Alls óvíst er hvort almennur grundvöllur og vilji verði fyrir svipuðum tilboðum á þessu ári. Ekki má gleyma að úrræði stjórnvalda, hlutabótaleið og uppsagnarstyrkir gerðu fyrirtækjunum kleift að halda áfram rekstri í fyrrasumar. Auk þess má reikna með að sá hluti þjóðarinnar sem hefur verið bólusettur eða fengið veiruna kjósi frekar að eyða sumarleyfinu erlendis. Litakóðakerfi lykilatriði Um miðjan janúar tilkynntu stjórnvöld um breytt fyrirkomulag á landamærum sem tekur gildi 1. maí næstkomandi. Fyrirkomulagið tekur mið af litakóðakerfi sóttvarnarstofnunar Evrópu. Í stuttu máli, er ekki á nokkurn hátt verið að „galopna“ landið, heldur einungis verið að opna á þann möguleika - undir ströngum skilyrðum - að hægt verði að ferðast til landsins án þess að þurfa að sæta fimm daga sóttkví. Út frá þessari ákveðnu dagsetningu hafa ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi unnið allar sínar áætlanir og allt markaðs- og sölustarf. Það þarf ekki að hafa mörgu orð um mikilvægi þess að ákvörðun stjórnvalda standi. Áhættan hlýtur að vera ásættanleg, einkum í ljósi þess að í byrjun maí verður samkvæmt bólusetningardagatali búið að bólusetja alla þá sem eru eldri en 70 ára og að stórum hluta aldurshópinn 60 - 69 ára og yngra fólk með undirliggjandi sjúkdóma. Jákvæð tíðindi frá ríkisstjórninni Frábær og mikilvæg tíðindi bárust frá ríkisstjórninni í morgun, þegar þau tilkynntu að ferðamönnum frá ríkjum utan Schengen, sem annað hvort eru með gilt bólusetningar- eða mótefnisvottorð sé nú heimilt að ferðast til landsins. Þetta er gríðarlega þýðingarmikið fyrir viðspyrnu ferðaþjónustunnar, þar sem á árinu 2019 mátti rekja rúmlega 41% allra gistinátta á hótelum til bandarískra (27%) og breskra ferðamanna (14,5%). Það þarf því ekki að fjölyrða um mikilvægi þessara markaðssvæða í endurreisn ferðaþjónustunnar. Þetta er ekki síst mikilvægt í því ljósi, að Bandaríkjamönnum og Bretum gengur jú mun betur að bólusetja sína þegna heldur en Evrópuríkjum og því ekki óvarlegt að reikna með að þessi ríki verði til í slaginn fyrr. Til að setja hluti í samhengi á Íslandi er alltaf skothelt að grípa til sjávarútvegsins. Einungis örlítill hluti (um 2%) afurða villta fisksins fer á markað á Íslandi. Ef til þess skyldi koma að ekki væri hægt að koma íslenskum fiski á erlenda markaði, myndi þá nokkrum manni detta í hug að við Íslendingar gætum þá keypt og borðað allan fiskinn sjálf, eins og ekkert hefði í skorist? Held ekki. Höfundur er formaður Samtaka ferðaþjónustunnar. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Bjarnheiður Hallsdóttir Ferðamennska á Íslandi Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Hin dásamlega sturlun: Umræðan á Íslandi Davíð Bergmann Skoðun Við getum öll bjargað lífi Kristófer Kristófersson Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra Eyjólfur Þorkelsson Skoðun 90 milljarða vannýtt útflutningstækifæri Vilhjálmur Hilmarsson Skoðun „Hristir í stoðum“ RÚV? Hermann Stefánsson Skoðun Að bjarga þjóð Jón Baldvin Hannibalsson Skoðun Það er heldur betur vitlaust gefið á Íslandi Jónas Yngvi Ásgrímsson Skoðun Fyrir hvern erum við að byggja? Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir Skoðun Að bera harm sinn í hljóði Gunnhildur Ólafsdóttir Skoðun Nýtt örorkulífeyriskerfi Inga Sæland Skoðun Skoðun Skoðun Það sem gerist þegar formúlur og fordómar hafa of mikil áhrif Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Látum verkin tala fyrir börnin á Gaza Gunnar Axel Axelsson skrifar Skoðun 90 milljarða vannýtt útflutningstækifæri Vilhjálmur Hilmarsson skrifar Skoðun Tvær sögur Egill Þ. Einarsson skrifar Skoðun Stærsta kjarabót öryrkja í áratugi Ingjibjörg Isaksen skrifar Skoðun Að bjarga þjóð Jón Baldvin Hannibalsson skrifar Skoðun Háskóli Íslands. Opinn og alþjóðlegur? Styrmir Hallsson,Abdullah Arif skrifar Skoðun Nýtt örorkulífeyriskerfi Inga Sæland skrifar Skoðun Það er heldur betur vitlaust gefið á Íslandi Jónas Yngvi Ásgrímsson skrifar Skoðun Að bera harm sinn í hljóði Gunnhildur Ólafsdóttir skrifar Skoðun Velferð sem virkar Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Gleðileg ný fiskveiðiáramót …von eða ótti? Arnar Laxdal skrifar Skoðun „Hristir í stoðum“ RÚV? Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra Eyjólfur Þorkelsson skrifar Skoðun Hin dásamlega sturlun: Umræðan á Íslandi Davíð Bergmann skrifar Skoðun Áhrif, evran, innviðir, öryggi Magnús Árni Skjöld Magnússon skrifar Skoðun Hugleiðing um rauð epli og skynjun veruleikans Gauti Páll Jónsson skrifar Skoðun Tumi þumall og blaðurmaðurinn Kristján Logason skrifar Skoðun Tímamót í velferðarmálum: Nýtt örorkulífeyriskerfi tekur gildi Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar Skoðun Stefnum á að veita 1000 börnum innblástur fyrir framtíðina Dr. Bryony Mathew skrifar Skoðun Samgönguáætlun – skuldbinding, ekki kosningaloforð skrifar Skoðun Menntun til framtíðar Bryngeir Valdimarsson skrifar Skoðun Við getum öll bjargað lífi Kristófer Kristófersson skrifar Skoðun Finnst ykkur þetta í lagi? Opinn pistill til heilbrigðisráðherra, landlæknis og forystu heilbrigðiskerfisins Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Menntastefna stjórnvalda – ferð án fyrirheits? Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að byggja? Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir skrifar Skoðun Beint og milliliðalaust Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Áfengissala: Þrýstingur úr tveimur áttum Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver vill heyra um eitthvað jákvætt sem er gert í skólunum? Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Enn af ferðum Angelu Müller. Eru erlendir ferðamenn afætur? BJarnheiður Hallsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Það sem gerist þegar formúlur og fordómar hafa of mikil áhrif Matthildur Björnsdóttir skrifar
Skoðun Tímamót í velferðarmálum: Nýtt örorkulífeyriskerfi tekur gildi Guðmundur Ingi Guðbrandsson skrifar
Skoðun Finnst ykkur þetta í lagi? Opinn pistill til heilbrigðisráðherra, landlæknis og forystu heilbrigðiskerfisins Steindór Þórarinsson skrifar
Skoðun Hver vill heyra um eitthvað jákvætt sem er gert í skólunum? Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar
Skoðun Enn af ferðum Angelu Müller. Eru erlendir ferðamenn afætur? BJarnheiður Hallsdóttir skrifar