Hagkvæm græn endurreisn Bjarni Bjarnason skrifar 19. mars 2021 14:30 Við Íslendingar búum sennilega við mesta rafmagnsöryggi allra þjóða. Ástæðan er einföld. Á Íslandi er unnið fimm sinnum meira rafmagn en þarf til allra þarfa samfélagsins, ef stóriðjan er frátalin. Hið almenna samfélag, sem notar eingöngu 20% af því rafmagni sem við vinnum, telur öll heimili, öll fyrirtæki og stofnanir, allan léttan iðnað, fiskvinnslu, landbúnað og einnig ungviðið í fjölskyldunni, rafbílana. Því mætti segja að í stóriðjunni eigum við „varaafl“ sem er fjórfalt meira en nemur öllum almennum þörfum samfélagsins ef í harðbakkann slær. Virkjanirnar okkar eru tiltölulega ungar, sumar alveg nýjar og þeim er afar vel við haldið. Flutningskerfi rafmagnsins, sem Landsnet rekur, er í grunninn mjög sterkt og er að styrkjast enn frekar. Enda er það svo að afhendingaröryggi rafmagns á Íslandi er iðulega talið með því besta sem gerist í heiminum, hvort sem er í úttektum IMD á samkeppnishæfni, hjá Alþjóðabankanum eða OECD. Við eigum dæmi um alvarlegt áfall í raforkukerfi þjóðar. Í Japan reið Fukushimajarðskjálftinn yfir fyrir réttum tíu árum. Slökkva þurfti á 55 kjarnorkuhverflum í kjölfarið. Gripið var til skömmtunar, Japanir slökktu ljósin og tóku loftkælinguna úr sambandi. Og þannig færi fyrir mörgum þjóðum ef rafmagnsvinnslan hryndi, en ekki okkur. Engin þjóð kemst með tærnar þar sem við höfum hælana hvað varðar rafmagnsvinnslu á íbúa. Næstir koma Norðmenn en þeir eru ekki hálfdrættingar. Traustar forsendur grænnar uppbyggingar Vinnsluöryggi rafmagns, afhendingaröryggi og „varaaflið“ eru traustar stoðir hagkvæmrar, grænnar uppbyggingar nú þegar við þurfum að rétta úr kútnum eftir kórónuveiruna. Við þurfum ekki, frekar en við viljum, að leggja í tugmilljarða fjárfestingar í flutningskerfi Landsnets til að byggja upp framleiðslu sem krefst rafmagns og flutnings á milli landshluta. Við getum strax beitt kröftum okkar og fjármunum í að skapa verðmæti og störf. „Varaaflið“ í stóriðjunni Ég geri ráð fyrir því að stóriðja á Íslandi telji það ekki hlutverk sitt að sjá þjóðinni fyrir varafli í neyð. Þannig yrði það nú samt ef á reyndi, að frekar yrði slökkt á nokkrum kerjum í álverunum en að slökkva ljósin á Landspítalanum. Í því felst einfaldlega mikið öryggi fyrir þjóðina að búa að framleiðslugetu á rafmagni sem er fimm sinnum meiri en grunnþarfir samfélagsins. Ef til þessa kæmi fengi Landsnet væntanlega það hlutverk frá löggjafanum að kaupa rafmagn af stóriðjunni og veita því til almennings. Hvernig leikreglurnar yrðu útfærðar í því samhengi er ekki mitt að spá fyrir um. Jarðvá Þjóðinni er tíðrætt um jarðvá nú þegar Reykjanes ræskir sig. Alvarleg jarðvá gæti sett rafmagnsvinnslu í landinu úr skorðum. Þannig gæti gos í Bárðarbungu, svo dæmi sé tekið, valdið flóði sem truflaði rekstur virkjana á Tungnársvæðinu. Með sama hætti gæti gos í Hengli sett rekstur virkjana á Hellisheiði og Nesjavöllum í uppnám. Slík truflun gæti varað í lengri eða skemmri tíma. Þá er gott að vita af „varaaflinu“ í stóriðjunni. Norðausturland Veruleg og löngu tímabær styrking á flutningskerfi Norðausturlands stendur nú yfir og er langt komin. Hún innifelur sterka tengingu úr Fljótsdalsstöð (Kárahnjúkavirkjun) norður í Kröflu og Þeistareyki og svo áfram inn til Eyjafjarðar og Akureyrar. Eyjafjarðarsvæðið hefur verið í alvarlegu flutningssvelti árum saman en nú rofar til. Allt Norðausturland verður þá vel tengt. Á svæðinu eru um 1000 MW af rafafli, blanda af vatnsafli og jarðvarma. Stórt álver er við suðurenda landshlutans en kísilver á Bakka nyrst. Vel er því séð fyrir „varaafli“ ef til skakkafalla kæmi. Suðvesturland Á Suðvesturlandi eru margar virkjanir, um 2000 MW að afli, góð blanda af vatnsafli og jarðvarma. Flutningskerfi Landsnets á Suðvesturlandi er afar öflugt ef frá er talinn Reykjanesskaginn. Tvö stór álver eru á Suðvesturlandi auk járnblendiverksmiðju og gagnavera. Nóg af „varaafli“ hér. Tenging milli Norðausturlands og Suðvesturlands Fjárfestingaáætlun Landsnets til næstu ára nemur 90 milljörðum króna en til samanburðar eru heildareignir fyrirtækisins nú um 100 milljarðar. Megináhersla í fjárfestingum Landsnets felst í að styrkja tengingu milli þessara tveggja flutningskerfa, á Norðaustur- og Suðvesturlandi. Í ljósi þess sem að framan er lýst getur það varla talist forgangsmál og er reyndar óþarft með öllu til skemmri tíma litið. Aðrir landshlutar og hlutverk Landsnets Hér eru Vestfirðir sér kapítuli en flutningskerfið þar er aldeilis ófullnægjandi og afhendingaröryggi rafmagns sömuleiðis. Ýmis byggðarlög á Norðurlandi urðu fyrir mikilli rafmagnstruflun í fyrravetur vegna veikrar tengingar út frá meginflutningskerfi Landsnets, sér í lagi frá tengivirkinu á Hrútatungu. Hluti af vandanum var dreifikerfi Rarik en fyrirtækið hefur um árabil unnið skipulega að úrbótum. Mér er sagt að verkefnið á Norðurlandi sé langt komið en það felst einkum í því að rífa loftlínur en leggja jarðstrengi í staðinn. Vestfirðir liggja hins vegar að mestu óbættir hjá garði. Ég tel mikilvægt að Landsnet nýti það fé sem það hefur til ráðstöfunar til þess að tryggja afhendingaröryggi til alls almennings í landinu. Undir það fellur meðal annars að byggja yfir tengivirki þar sem hætta er á að selta hlaðist upp og valdi rofi. Tekjur og gjöld Eins og fram hefur komið hefur flutningur rafmagns um kerfi Landsnets minnkað að undanförnu en ekki aukist og því ættu tekjur fyrirtækisins rýrna að öðru jöfnu. Öll fyrirtæki þurfa að sníða sér stakk eftir vexti og ekki síst opinber fyrirtæki í sérleyfisrekstri. Í tilfelli Landsnets er flutningur að minnka og þá ætti stakkurinn að þrengjast. Þvert á móti áætlar Landsnet að fjárfesta fyrir 90 milljarða króna á næstu árum, sem mun að óbreyttu leiða til verulegrar hækkunar gjaldskrár en hún er há fyrir. Hækkun gjaldskrár mun leggjast á almenning og alla atvinnustarfsemi og veikja samkeppnisstöðu landsins. Allir stórnotendur hafa lýst áhyggjum af þessum fyrirætlunum og stærstu rafmagnsframleiðendur eru á sama máli. En áætlanir Landsnets breytast ekkert þrátt fyrir það. Forgangsröðun verkefna og misskilningur Landsnet virðist standa í þeirri trú að fyrirtækinu beri að tryggja það fyrir fram að tengja megi nýjar virkjanir og nýja stórnotendur við flutningskerfið hvenær sem er og hvar sem er. Hér er sleginn nýr tónn því þannig hefur aldrei verið staðið að verki. Búrfell var byggt og lína lögð frá virkjun til Straumsvíkur, eftir að gengið hafði verið frá bindandi samningum. Sama má segja um Kárahnjúkavirkjun og álver Alcoa. Tvær öflugar flutningslínur voru lagðar frá Fljótsdalsstöð niður á Reyðarfjörð þegar bindandi samningar lágu fyrir. Mér vitanlega eru engar stórar virkjanir áformaðar á næstu árum enda eru þær virkjanir sem fyrir eru ekki fullnýttar. Engir samningar við stórkaupendur á rafmagni virðast heldur í burðarliðnum. Við vitum ekki hvenær eða hvort fleiri stórvirkjanir verða reistar á Íslandi. Er rétti tíminn nú að eyða tugum milljarða króna í flutningslínur til að flytja rafmagn frá virkjunum sem hugsanlega verða aldrei byggðar til notenda sem enginn veit hverjir eru eða hvort þeir verða til? Höfundur er forstjóri OR. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Orkumál Bjarni Bjarnason Mest lesið Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Við höfum engu að tapa – þess vegna segi ég já Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ísland og evran Höskuldur Einarsson skrifar Skoðun Gosi og gylliboðin Kristín Thoroddsen skrifar Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar Skoðun Spánverjar vilja íslenskan sjávarútveg Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Fólkið eða peningarnir? Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Stöndum vörð um...hvað? Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Hvaða ákvæði læknasamningsins voru mistök? Steinunn Þórðardóttir skrifar Skoðun Fullveldi hvað Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Sjá meira
Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun
Skoðun Nýr samfélagssáttmáli: Lífeyrissjóðir, bankakerfi og afnám verðtryggingar — raunhæf leið til stöðugleika í kjarasamningum og styrkingar lánshæfismats Íslands Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson skrifar
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar
Ný komugjöld í heilbrigðisþjónustu munu stórauka kostnaðarhlut sjúklinga Halldór Rafn Halldórsson Skoðun